Tveir rifflar í allt?

Allt sem viðkemur byssum
User avatar
gylfisig
Posts: 598
Joined: 22 Feb 2012 13:03

Re: Tveir rifflar í allt?

Unread post by gylfisig »

Já,, og hér er víst myndin.
Attachments
1524720_691629337527060_2101134433_n.jpg
1524720_691629337527060_2101134433_n.jpg (20.26 KiB) Viewed 4121 times
Kv.
Gylfi Sigurðsson
Húsavík
Freysgodi
Posts: 58
Joined: 20 Sep 2013 22:46
Fullt nafn: Jón Valgeirsson

Re: Tveir rifflar í allt?

Unread post by Freysgodi »

Sælir aftur,

Og takk fyrir flott svör.

Varðandi Freysgoða nafnið, þá er ég hræddur um að ég get ekki gert neitt tilkall til þess goðorðs, enda hef ég rakið ættir mínar allar aftur um 10 ættliði og finnst enginn forfaðir búandi austan Mývatnssveitar (og enginn heldur sunnan Breiðafjarðar - en það er önnur saga). Þetta nafn var einfaldlega mér ofarlega í huga þegar ég valdi mér notendanafn - enda nýbúinn að lesa Hrafnkelssögu Freysgoða - sem er náttúrulega ein af okkar allra bestu perlum. Annars nota ég alla jafna nafn drekans góðkunna sem Gvendur bóndi á Svínafelli fékkst við - Chrysophylax.

Það eru ansi marg kaliber í gangi - og til að einfalda málið þá skulum við alveg taka pappaskotfimina út úr dæminu - skulum miða dæmið eingöngu út frá veiði eiginleikum. Varmint riffillinn þyrfti eðli málsins samt að vera nákvæmur.

Upphaflega leist mér mjög vel á 270 og 243 - hvernig myndi það ganga saman í lás? Mér þætti gaman að heyra af öðrum "pörum" með ofangreinda eiginleika sem myndu eiga góða sambúð saman í lás.

Varðandi 2506 þá hefur mér verið sagt að ekki sé hægt að fá kúlu í það caliber sem nothæf er til að veiða gæs (til átu) - er það ekki rétt?

Nú fer ég að lesa mér til um allar þessar 284 útgáfur og 6.5x47 og fleiri sem nefnd hafa verið til sögunna

Kveðja,

Jón V
User avatar
gylfisig
Posts: 598
Joined: 22 Feb 2012 13:03

Re: Tveir rifflar í allt?

Unread post by gylfisig »

http://www.6mmbr.com/gunweek072.html

Þetta er allt í senn.. pappagatari, varmint hylki, og veiðihylki
Kv.
Gylfi Sigurðsson
Húsavík
User avatar
Stebbi Sniper
Posts: 492
Joined: 09 Jun 2012 00:58
Location: Reykjavík
Contact:

Re: Tveir rifflar í allt?

Unread post by Stebbi Sniper »

Jón V

Ef þú ert fastur í því að hafa þetta 2 hlaup og skipta þeim út þá er .284 Win og 6-284 alveg rosalega áhugavert combó.

Ef þú vilt hafa þetta bara eitt hlaup, þá gerir bæði 6.5-284 og .284 Win allt þetta sem þú nefnir alveg ágætlega.

Það sem .308 og .243 hefur hinsvegar fram yfir er þetta, ef þú færð ekki skot í þessi tvö cal út í búð, þá ertu líklega ekki í byssubúð.

Gylfi er hinsvegar á villigötum með samanburðinn á 6,5x47 og 6,5-284, aftur! 6,5-284 sendir 130 grs kúlu á yfir í 3100 fps

Kíktu á þetta: 130grs Berger Hunting

Ég er að skjóta þessari sömu kúlu úr 6,5x47 með 35 grs af N-140 á 2650 fps. ATH að 35 grs af N-140 er MAX hleðsla fyrir þessa kúlu. Með RL-15 sem er það púður sem þú nærð að kreista mestan hraða út úr 6,5 x 47 með, þá nærðu þessari kúlu kannski á 2750 MAX 2800 fps.

Ég hef líka átt bæði þessi kaliber eins og Gylfi og þetta eru ekki sambæileg kaliber. Enda er púður magnið í 6,5-284 frá svona 52 - 63 grs MAX heldðsla eftir kúluþyngdum á meðan 6,5x47 er frá kannski svona 34 upp í 42 grs.

Hins vegar má deila um það hvort tæplega 50 % meira púðri sé vel varið í 10 - 15 % meiri hraða.

Ef þú ætlar að henda pappagötuninni út þá er 284 hylkið mjög áhugavert. 6,5 og 7mm kúlur eru mjög áhugaverða og þá sérstaklega 7 ef maður horfir á þetta út frá því sem þú hugsar riffilinn í. 7mm WSM er annað mjög flott hylki.

Ég á í dag einn riffil í stærri kaliberunum sem dugar mér í allt sem ég ætla að nota hann í... það er að segja, aðalega í að gata pappa og veiða allt sem hægt er að veiða á Íslandi. Þessi riffill er í 6,5 x 47. Eins skota og gettu hvað... ég er ófeiminn við að setja kúluna alveg fram í rílur þó ég sé að skjóta hreindýr með honum... enda er hugmyndin að hitta!
Stefán Eggert Jónsson
Skotfélag Kópvogs
User avatar
Stebbi Sniper
Posts: 492
Joined: 09 Jun 2012 00:58
Location: Reykjavík
Contact:

Re: Tveir rifflar í allt?

Unread post by Stebbi Sniper »

Þetta var reyndar nokkuð óvænt hjónaband hjá okkur Gylfa... ekki ónýtt að Siggi skyldi vera presturinn!!! :D Vel gert...

En hann hefur líka nokkuð til síns máls þegar hann talar um veiðikaliber! Það er hinsvegar ekkert sérlega gaman að gata pappa með hlaupbrennurum, þú munt þurfa að eyða meiri tíma í að kæla hlaupið en að skjóta....
Stefán Eggert Jónsson
Skotfélag Kópvogs
User avatar
gylfisig
Posts: 598
Joined: 22 Feb 2012 13:03

Re: Tveir rifflar í allt?

Unread post by gylfisig »

Ég er buinn að hlaða í allmarga riffla í kal 6,5x284. Enginn þeirra hefur þolað max hleðslu samkv Norma ´manualnum. Notaði Norma MRP og hef þurft i sumum rifflum að fara alveg niður í 52,0 grs með 120 grs kúlu. Er enn i fersku minni riffill sem ég fékk i hendurnar i vor i 6,5x284.
Hann þoldi ekki 53,5 grs hleðslu af MRP og eyðilagði hylkin. Svo mikil var pressan.
Ég hraðamældi þessi kaliber, ásamt nokkrum öðrum, og niðurstaðan kom talsvert á óvart. Meðaltal 10 skota úr 6,5x284 var 3030 ft með 120 nosler.
Meðaltal 10 skota úr 6,5x47 var 3014 ft með sömu kúlu, (ekki max)
Kv.
Gylfi Sigurðsson
Húsavík
User avatar
krossdal
Posts: 51
Joined: 19 Mar 2012 11:40
Fullt nafn: Kristján Krossdal
Location: Egilsstaðir
Contact:

Re: Tveir rifflar í allt?

Unread post by krossdal »

Stebbi Sniper wrote: ég er ófeiminn við að setja kúluna alveg fram í rílur þó ég sé að skjóta hreindýr með honum... enda er hugmyndin að hitta!
Ætla að fá að ver með smá útúrdúr á þessum þræði - afsakaðu það Jón.

Afhverju ætti maður að vera feiminn við að setja kúluna fram í rílur?
Kristján Krossdal
Árskógum 5
700 Egilsstaðir
Freysgodi
Posts: 58
Joined: 20 Sep 2013 22:46
Fullt nafn: Jón Valgeirsson

Re: Tveir rifflar í allt?

Unread post by Freysgodi »

Sæll Kritsján

Ekkert mál - mér sýnist að allir séu að verða sammála um að 270 / 243 sé besta blandan, svona þegar veiðin og mpbr er haft að leiðarljósi.

Þín hefur verið sárt saknað hér suður á skotreynarvellinum - er ekki kominn tími á nýjan flutning?

Kveðja

Jón
User avatar
jon_m
Posts: 169
Joined: 16 Dec 2012 11:12
Location: Fossárdalur
Contact:

Re: Tveir rifflar í allt?

Unread post by jon_m »

Sæll nafni

Nú ætla ég að spyrja mér fróðari menn frekar en að mæla með þessum hylkjum. Hvað með 270 eða 30-06 og svo 25-06AI fyrir varmint ? er það fráleitt ? Sjálfur er ég með 25-06 í léttu hlaupi og líkar vel, ég skal samt viðurkenna að í pappaskytteríinu vildi ég gjarnan sá meiri nákvæmni en þetta hlaup hefur uppá að bjóða.

Kúluúrvalið í .25 er reyndar ekki mjög mikið og til að svara spurningu þinni um hvort hægt sé að skjóta gæs með .25-06 til matar, þá er svarið já ef þú hittir hana vel. En með nákvæmum veiðiriffli í á að vera formsatriði að hausskjóta gæs á allt að 150 metrum þannig að kúlan skiptir ekki máli.

Þú þarft ekki að taka .25-06 hlaupið af til að skjóta 1 hreindýr á 3 ára fresti. Það er hinsvegar óþarfi að vera að bera 6 kg hlaup með sér í marga daga til að skjóta einu skoti. En oftast ná menn nú hreindýrinu á fyrsta degi og þurfa ekki að bera riffilinn mjög langt.

kveðja
Jón M
kveðja
Jón Magnús Eyþórsson
jonm@fossardalur.is
http://facebook.com/hreindyr
User avatar
sindrisig
Posts: 313
Joined: 09 Oct 2010 08:45
Location: Neskaupstaður

Re: Tveir rifflar í allt?

Unread post by sindrisig »

Já og já... velkominn í trúarbragðahóp calibersins...

Tilfellið er að þetta er allt saman mis vont, ekki gott heldur vont. Þú getur ekki skotið augastein úr dúfu á 200 metrum í hvert skipti sem þú tekur upp riffilinn og ætlar þér það. Alveg sama hvaða caliber og tegund þú velur.

Veldu eftir því.
Sindri Karl Sigurðsson
Hjölli
Posts: 27
Joined: 02 Jun 2012 21:55
Location: Kopavogur Iceland

Re: Tveir rifflar í allt?

Unread post by Hjölli »

Mitt veiðicaliber er 30 06 allstaðar hægt að fá tilbúin skot og samkvæmt vihtavuori bókinni
100 gr kúla á 3465 fps 63 gr n540 gott úrval af kúlum uppí 220 gr lapua hylki til endurhleðslu
svo má nota 7mm 284 í pappan eða eins og kaninn var að prufa fyrir F class 30 06 hylkið og 7mm
kúla cal 280
Hjörleifur Hilmarsson
Jenni Jóns
Posts: 285
Joined: 11 May 2013 21:37
Fullt nafn: Jens Jónsson

Re: Tveir rifflar í allt?

Unread post by Jenni Jóns »

Hjölli wrote:100 gr kúla á 3465 fps 63 gr n540
Þetta er nánast sami hraði og þessi kúla er á úr cal 308 samkvæmt sömu bók þá er 100 gr kúla á 3425 fps með 46,5 gr af N530

Ég hef verið að skjóta 125 gr kúlu úr cal 308 á 3160 fps og 185 gr Berger á 2700 fps það er reyndar alveg á mörkunum, hef samt ekki sprengt primer en ég geri ráð fyrir að minnka hleðsluna aðeins og stefni á 2650 fps.

Ég held reyndar að caliberið skipti minna máli en æfingin með viðkomandi byssu.
270/243 kemur ábyggilega vel út.
Jens Jónsson
Akureyri
User avatar
maggragg
Skytta
Posts: 1287
Joined: 02 Jul 2010 07:59
Fullt nafn: Magnús Ragnarsson
Location: Vík
Contact:

Re: Tveir rifflar í allt?

Unread post by maggragg »

krossdal wrote:
Stebbi Sniper wrote: ég er ófeiminn við að setja kúluna alveg fram í rílur þó ég sé að skjóta hreindýr með honum... enda er hugmyndin að hitta!
Ætla að fá að ver með smá útúrdúr á þessum þræði - afsakaðu það Jón.

Afhverju ætti maður að vera feiminn við að setja kúluna fram í rílur?
Það sem ber að varast er að þrystigur eykst töluvert þegar kúlan er komin fram í rílur, og þarf því að draga úr púðurmagni til að mæta því. Hitt er að á veiðum eða annarsstaðar sem sú staða getur komið upp að hætt sé við skot getur kúlan orðið eftir í hálsinum þegar riffillinn er opnaður með tilheyrandi veseni, púðri út um allt og föst kúla í hálsi.

En í markskyttery hefur þetta reynst nákvæm kúlusetning að sögn margra þar sem kúlan er skorðuð áður en hún fer af stað.
Magnús Ragnarsson
Vík
868 0546

"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
User avatar
krossdal
Posts: 51
Joined: 19 Mar 2012 11:40
Fullt nafn: Kristján Krossdal
Location: Egilsstaðir
Contact:

Re: Tveir rifflar í allt?

Unread post by krossdal »

Freysgodi wrote: Þín hefur verið sárt saknað hér suður á skotreynarvellinum - er ekki kominn tími á nýjan flutning?
Nei, held að það verði engir flutningar nema þá kannski eitthvað austur á bóginn í átt að Héraðinu fagra. En ég er nú samt að hugsa um að koma og kíkja í heimsókn til ykkar helgina 8-9. febrúar nk. :D
maggragg wrote:
krossdal wrote:
Stebbi Sniper wrote: ég er ófeiminn við að setja kúluna alveg fram í rílur þó ég sé að skjóta hreindýr með honum... enda er hugmyndin að hitta!
Ætla að fá að ver með smá útúrdúr á þessum þræði - afsakaðu það Jón.

Afhverju ætti maður að vera feiminn við að setja kúluna fram í rílur?
Það sem ber að varast er að þrystigur eykst töluvert þegar kúlan er komin fram í rílur, og þarf því að draga úr púðurmagni til að mæta því. Hitt er að á veiðum eða annarsstaðar sem sú staða getur komið upp að hætt sé við skot getur kúlan orðið eftir í hálsinum þegar riffillinn er opnaður með tilheyrandi veseni, púðri út um allt og föst kúla í hálsi.

En í markskyttery hefur þetta reynst nákvæm kúlusetning að sögn margra þar sem kúlan er skorðuð áður en hún fer af stað.
Ég skil. Takk fyrir þetta.
Kristján Krossdal
Árskógum 5
700 Egilsstaðir
konnari
Posts: 343
Joined: 12 Mar 2012 15:04

Re: Tveir rifflar í allt?

Unread post by konnari »

Miðað við upplýsingarnar frá þér þá finnst mér þetta liggja nokkuð ljóst fyrir::

Fyrir léttan veiðiriffil í allt þá tæki ég hiklaust 30-06.....hann höndlar allt hér heima og er snilld í hreindýr, erlendis er hann góður í allt nema "Thick skinned dangerous game". Skýtur kúlum frá 110 gr. upp í 220 gr. fáir toppa þessa fjölhæfni. Til hellingur af verksmiðjuskotum allsstaðar í heiminum.

Fyrir hraðan og nákvæman Varmint riffil er fátt sem toppar 25-06, en ef þú ætlar aðallega að nota Varmint riffilinn í það að "gata" A-5 pappír þá tæki ég frekar eitthvað 6.5mm sem slítur hlaupinu minna.

Annað gott combo sem sumir hafa bent á er 270win og 243win en þar gætir þú lent í lásavandræðum því 243win er yfirleitt stuttur lás. Þú lendir ekki í veseni með það ef þú velur 30-06 og 25-06....allt eins þ.e. lás og magasín ecc.
Kv. Ingvar Kristjánsson
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Tveir rifflar í allt?

Unread post by Veiðimeistarinn »

Sammála Ingvari :D
Mér lýst ekkert á combóið 270 versus 243 8-)
Ég hef áður sagt, að 243 sé dálítið caliber gærdagsins, og stend við það ;)
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Jenni Jóns
Posts: 285
Joined: 11 May 2013 21:37
Fullt nafn: Jens Jónsson

Re: Tveir rifflar í allt?

Unread post by Jenni Jóns »

Ég hef verið að velta þessu meira fyrir mér og niðurstaðan er að 270/243 henti sennilega ekki saman allavega myndi ég reyna velja saman móðurhylki og villikött frá því t.d
284 / 6-284
308 / 243
30-06 / 25-06
í þessari röð
Jens Jónsson
Akureyri
User avatar
Gisminn
Posts: 1349
Joined: 29 Aug 2011 21:47
Location: Blönduós

Re: Tveir rifflar í allt?

Unread post by Gisminn »

Eins og ég skil upphafs spurninguna þá var beðið um 2 riffla ekki skiptihlaup svo þetta er mín útgáfa Mitt vandamál hefur altaf verið þar sem ég á 6,5x55 er að finna sem ólíkasta caliberið en með sömu nákvæmni en samt geta notað við veiðar og varla fundið það en.
Þannig að í augnablikinu er ég með þessa 2 riffla og er alveg hæst ánægður með þa
6,5x55 120 gr NoslerBT fínt í alla veiði sem ég stunda nákvæmur og góður að 500 metrum
204 Ruger 39 og 45 graina kúlur engin vargur stendur upp eftir sendingu frá honum og gjörsamlega molar hauskúpuna á sel.Hliðar rek eina vandamál en lærist fljótt
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
User avatar
krossdal
Posts: 51
Joined: 19 Mar 2012 11:40
Fullt nafn: Kristján Krossdal
Location: Egilsstaðir
Contact:

Re: Tveir rifflar í allt?

Unread post by krossdal »

Svo ég blandi mér nú í calibera-pólitíkina þá mundi ég velja 22-250 og 308. 22-250 sem þunga varmint caliberið og 308 til að skrúfa á eins og þú nefnir á riffilin á 5 ára fresti til að skjóta hreindýr.

Fallið á 308 er það sem hrindir mönnum helst frá því. Það hlítur þó að vera ástæða fyrir því að það er notað í F-class skotfimi (sjá nýlegan þráð). En ef maður getur ekki lært á fallið á 308 upp að amk. 300m (held að það sé sjaldgæft að menn séu að drepa hreindýr á lengra færi, þó auðvita komi það fyrir) þá held ég að það sé betur heima setið þ.e.a.s. ef maður hefur einhvern metnað fyrir því sem maður er að gera.

22-250 og 308 eru byggð á sama hylki og því ætti þetta að fara vel saman. :)
Kristján Krossdal
Árskógum 5
700 Egilsstaðir
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Tveir rifflar í allt?

Unread post by Veiðimeistarinn »

Veiðimeistarinn wrote:Ég hef áður sagt, að 243 sé dálítið caliber gærdagsins, og stend við það ;)
Smá viðbót 8-) Síðan finnst mér að 308 sé voðalega mikið caliber fyrradagsins :twisted:

Þessi caliber 243 og 308 eru sjálfsagt fínt kombó, ég get verið alveg hjartanlega sammála því.
Þau eru mér samt ekki að skapi til veiða hér á klakanum, eins og fram hefur komið.
Mér finnast mörg caliber sem komið hafa fram á síðustu árum henta mun betur til þeirra verka að mínu viti, sem nær nú kannski ekki langt en spannar þó 40 ár á hreindýraveiðum.
Ég efast um að nokkur sem tjáir sig hér inni skarti svo langri samfelldri veiðireynslu, ef einhver hér á spjallinu getur bent mér á hann, vil ég gjarnan hafa tal af viðkomandi, ég held að við hefðum um margt að spjalla :o
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Post Reply