Íslenskt orð yfir Penetration??

Almennt um veiði eða veiðar á bráð sem ekki eru í undirflokkunum
User avatar
Bowtech
Posts: 184
Joined: 11 Jan 2011 12:34
Fullt nafn: Indriði Ragnar Grétarsson
Location: Sauðárkrókur
Contact:

Íslenskt orð yfir Penetration??

Unread post by Bowtech »



Langar aðeins að athuga hvort þið vitið um eitthvað íslenskt orð yfir "Penetration"

Það er oft verið að tala um penetration test í gel, hvort sem notuð er kúla eða ör ofl. en maður hefur aldrei séð íslenskt orð sem væri hægt að nota.

Endilega komið með uppástungur. ;)
Kv
Indriði R. Grétarsson.
Bogaskytta Cal.308
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Íslenskt orð yfir Penetration??

Unread post by Veiðimeistarinn »

Hvað áttu við með test í gel?
Bein þýðing á orðinu samkvæmt Google translate, er "skarpskyggni".
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
User avatar
gkristjansson
Skytta
Posts: 250
Joined: 02 May 2012 14:21
Location: Ungverjaland

Re: Íslenskt orð yfir Penetration??

Unread post by gkristjansson »

Eftir þvi sem ég best veit:

Þegar verið er að tala um "penetration" í sambandi við svona próf þá er verið að tala um hversu langt viðkomandi hlutur (ör eða kúla) fer inn í gelið.

Þetta orð er líka notað um samfarir og er þá átt við þegar að ákveðinn líkamshluti karla kemst inn í ákveðinn líkamshluta kvenna.....

Ég er reyndar búinn að vera svo lengi í burt frá Íslandi að "lenskan" mín er ekki með því besta en hvað með að nota eitthvað eins og: "snertidýpt".
Kveðja,

Guðfinnur Kristjánsson
User avatar
TotiOla
Posts: 406
Joined: 07 Mar 2012 21:21
Location: 210 Garðabæ

Re: Íslenskt orð yfir Penetration??

Unread post by TotiOla »

"Rof" er beinþýðingin en ég hef einnig heyrt talað um "gegnflæði" eða "gegnumflæði" sem segir það sem segja þarf.
Mbk.
Þórarinn Ólason
User avatar
Bowtech
Posts: 184
Joined: 11 Jan 2011 12:34
Fullt nafn: Indriði Ragnar Grétarsson
Location: Sauðárkrókur
Contact:

Re: Íslenskt orð yfir Penetration??

Unread post by Bowtech »

Já það gæti gengið. En til kannski að orða þetta betur að þá er þetta notað þegar verið er að pæla í dýpt þegar skotið er á gel eða bráð. oft er talað um full pentration ( gegnum skot) en þá er talað um að skotið hafi farið í gegnum viðkomandi skotmark, sem sagt ekki stoppað. Ástæðan að ég er veltu þessu fyrir mér er að ég er reyna að þýða fræðslumyndband og vantar eitthvað gott orð yfir þetta en það kemur mjög oft fyrir..
Kv
Indriði R. Grétarsson.
Bogaskytta Cal.308
User avatar
gkristjansson
Skytta
Posts: 250
Joined: 02 May 2012 14:21
Location: Ungverjaland

Re: Íslenskt orð yfir Penetration??

Unread post by gkristjansson »

Ég held að orðið "Rof" eigi við í sumum kringumstæðum en öðrum ekki.

Til dæmis setningin:

"The bullet achieved at penetration of one inch into the gel when fired at a distance of 100 yards from the target"

Ef ég væri að þýða þetta þá myndi ég reyndar ekki nota eitt orð heldur reyna að segja þetta á þennan máta:

"Kúlan náði að fara eina tommu inn í gelið þegar skotið var á 100 metra (yarda) færi"
Kveðja,

Guðfinnur Kristjánsson
User avatar
Gisminn
Posts: 1349
Joined: 29 Aug 2011 21:47
Location: Blönduós

Re: Íslenskt orð yfir Penetration??

Unread post by Gisminn »

Afhverju ekki
Kúlan hitti gelið með höggþunga sem gekk eina tommu inn í gelið.
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
User avatar
Aflabrestur
Posts: 490
Joined: 25 Feb 2012 08:01
Location: Sauðárkrókur

Re: Íslenskt orð yfir Penetration??

Unread post by Aflabrestur »

Sælir.
Það skársta sem mér hefur dottið í hug er "innkoma" eða "innganga" en finnst það ekki mjög þjált
við erum talsvert búnir að kasta þessu á milli okkar félagarnir en ekkert fundið sem okkur líkar.
kv.
Jón (Jónbi) Kristjánsson
Sauðárkróki
"I don´t have to be careful, i´ve got a gun" Homer J. Simpson
User avatar
gkristjansson
Skytta
Posts: 250
Joined: 02 May 2012 14:21
Location: Ungverjaland

Re: Íslenskt orð yfir Penetration??

Unread post by gkristjansson »

Ég held að tillagan frá aflabrest sé sennilega sú besta:

'Kúlan gekk eina tommur inni í gelið á meðan að örin gekk tvær tommur inn".

Ég er ekki viss um að hægt sé að nota "höggþunga" þar sem að örin nær að "skera sig inn" og færi þannig lengra inn í gelið en kúla sem kæmi í gelið með sama höggþunga.
Kveðja,

Guðfinnur Kristjánsson
User avatar
Gisminn
Posts: 1349
Joined: 29 Aug 2011 21:47
Location: Blönduós

Re: Íslenskt orð yfir Penetration??

Unread post by Gisminn »

Það er líklega rétt hjá þér Guðfinnur
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Íslenskt orð yfir Penetration??

Unread post by Veiðimeistarinn »

Jæja ætli sé ekki best að lista þetta upp sem komið er!

Penetration =

Höggþungi.
Sker sig inn.
Gengur inn (í gelið).
Innkoma.
Innganga.
Rof.
Gegnflæði.
Gegnumflæði.
Snertidýpt.

Voru þetta ekki allar tilögurnar sem voru komnar?

Málvitund minni lýst best á "Snertidýpt".
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Padrone
Posts: 150
Joined: 02 May 2012 11:15
Location: Kópavogur

Re: Íslenskt orð yfir Penetration??

Unread post by Padrone »

Mér finnst innganga mjög gód.

Sbr:
6 cm innganga inn í gelid
Kúlan/örin gekk í gegnum gelid

Æ, ég veit ekki... ;P
Kv. Árni Vigfús Magnússon
arni1980 (hjá) gmail.com
699 4569
User avatar
skepnan
Skytta
Posts: 256
Joined: 01 Apr 2012 12:35

Re: Íslenskt orð yfir Penetration??

Unread post by skepnan »

Sælir allir, innkoma er ágætis orð og passar við ákomu ,(eins og talað er um höggl), mér dettur líka í hug inndýpt sbr. kúlan kom í gelið með inndýpt upp á 6 sentimetra en örin var með inndýpt upp á 4sm.
En verra er að tala um fulla inndýpt þegar kúlan fer í gegn :shock:
Þetta þarf hugsunar við.

Eftir smá hugsun bættust við skriðdýpt sbr. skriðþunga, innrof eða innskurður, innsetning er meira þýðing á insertion eða þá taka stóra bullið á þetta og kalla það innstungu :D

Kveðja Keli
Þorkell D. Eiríksson
keli.skepnan@gmail.com
Fljótsdalur í Fljótshlíð
User avatar
maggragg
Skytta
Posts: 1287
Joined: 02 Jul 2010 07:59
Fullt nafn: Magnús Ragnarsson
Location: Vík
Contact:

Re: Íslenskt orð yfir Penetration??

Unread post by maggragg »

Magnað að þetta orð sem á við um hugtak sem allir veiðimenn og aðrir sem eru að skjóta skilja skuli ekki hafa neina almennilega þýðingu á íslensku. Hvað með að smjúga. Kúla smýgur inn í eitthvað eða ör smýgur í gegnum eitthvað. Þetta er ekki heldur fullkomin þýðing en meininging er svipuð.
Magnús Ragnarsson
Vík
868 0546

"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
User avatar
TotiOla
Posts: 406
Joined: 07 Mar 2012 21:21
Location: 210 Garðabæ

Re: Íslenskt orð yfir Penetration??

Unread post by TotiOla »

Sælir allir aftur

Ég verð að segja fyrir mitt leyti, eftir að hafa lesið allar þær hugmyndir sem hér hafa komið fram, að mér finnst orðin innganga og gegnumganga (eða að ganga í gegnum) lýsa þessu best.

Það mætti þannig segja að kúlan hafi náð fullri gegnumgöngu eða gengið að fullu í gegnum skotmarkið, á meðan örin náði aðeins 4 sentimetra inngöngu.

Annars er ég sammála Magnúsi með að það er magnað hvað þetta góða orð (penetration), sem nýtist og lýsir atriðinu svona vel, skuli vera jafn illþýðanlegt og raun ber vitni :geek:
Mbk.
Þórarinn Ólason
Sveinn
Posts: 166
Joined: 07 May 2012 20:58

Re: Íslenskt orð yfir Penetration??

Unread post by Sveinn »

Penetration þarf ekki að þýða að kúlan fari í gegn heldur hvað hún fer (smýgur) langt inn í vef bráðar. Smjúga eða að hola? Smugkraftur eða holunarkraftur fyrir penetration power?
Með kveðju,
Sveinn Aðalsteinsson
User avatar
TotiOla
Posts: 406
Joined: 07 Mar 2012 21:21
Location: 210 Garðabæ

Re: Íslenskt orð yfir Penetration??

Unread post by TotiOla »

Sveinn wrote:Penetration þarf ekki að þýða að kúlan fari í gegn heldur hvað hún fer (smýgur) langt inn í vef bráðar. Smjúga eða að hola? Smugkraftur eða holunarkraftur fyrir penetration power?
Sæll Sveinn
Veit ekki hvort þessu, með að þetta þurfi ekki að þýða að kúlan fari í gegn, er beint til mín. En ef svo er þá var innganga orðið sem mér fannst persónulega lýsa þessu best af þeim orðum sem núþegar hafa komið fram. Og þá gegnumganga ef kúlan hafi farið í gegn.

Inngöngukraftur væri þá, í framhaldi, þýðingin á penetration power. Það má hinsvegar alveg deila um hversu þjált það er.

Eins mætti skoða að það að notast við dýpt. T.d. höggdýpt, eins og notast er við höggþunga. En þá vandast málin þegar þýða á full penetration.
Mbk.
Þórarinn Ólason
User avatar
Bowtech
Posts: 184
Joined: 11 Jan 2011 12:34
Fullt nafn: Indriði Ragnar Grétarsson
Location: Sauðárkrókur
Contact:

Re: Íslenskt orð yfir Penetration??

Unread post by Bowtech »

Margt af þessu eru nokkuð góðar uppástungur en við þessa þýðingu sem ég er að vinna í að þá henta sum orðin og önnur ekki, af því að þetta orð er notað á mismunadi hátt og ekki í sama samhengi.

Ég vona að maður fái leyfi til að sýna þetta myndband almennt en ekki bara á kynningum og gagnvart yfirvöldum. En þetta myndband er um áhrif og afl í ör með veiðioddi borið saman við veiðikúlur og ég get sagt ykkur að hörðust riffil kallar gætu verið í erfiðleikum með að sætta sig við þessar niðurstöður og við þær aðstæður sem prófanir eru gerðar eins og fram kemur í myndbandinu..
Kv
Indriði R. Grétarsson.
Bogaskytta Cal.308
User avatar
maggragg
Skytta
Posts: 1287
Joined: 02 Jul 2010 07:59
Fullt nafn: Magnús Ragnarsson
Location: Vík
Contact:

Re: Íslenskt orð yfir Penetration??

Unread post by maggragg »

Verður áhugavert að sjá þetta myndband. Hvað er svona hefðbundin veiðiör þung? Væri gaman að vita hvað SD eða Sectional Density er á henni ( Vantar líka góða þýðingu? ).
Magnús Ragnarsson
Vík
868 0546

"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
User avatar
gkristjansson
Skytta
Posts: 250
Joined: 02 May 2012 14:21
Location: Ungverjaland

Re: Íslenskt orð yfir Penetration??

Unread post by gkristjansson »

Sælir,

Fyrst af öllu vill ég segja hvað ég hef gaman af því að fylgjast með spjallinu hér, ólíkt vitrænna og kurteisara en spjallið á öðru vefsvæði sem ég var að kíkja á hér áður fyrr (þið vitið sjálfsagt flestir hvaða vefsvæði ég er að tala um).

Allaveganna þá skil ég "sectional density" á þennan máta:
SD = M / U2 (þegar verið er að tala um hringlaga hluti svo sem kúlur og örvarodda)
M er þyngd (massi) og U2 er flatarmál ummál hlutarins (flatarmál hringsins).

Væri þá kannski hægt að kalla þetta "ummálsþyngd'?
Kveðja,

Guðfinnur Kristjánsson
Post Reply