Íslenskt orð yfir Penetration??
- maggragg
- Skytta
- Posts: 1287
- Joined: 02 Jul 2010 07:59
- Fullt nafn: Magnús Ragnarsson
- Location: Vík
- Contact:
Re: Íslenskt orð yfir Penetration??
Bein þýðing gæti verið svæðisþéttleiki þar sem section má þýða sem svæði og density er þéttleiki eða þéttni. Ég þýddi einhverntíman eitthvað skotforrit og þá fann ég minnir mig ágætist orð en ég hef gleymt því aftur. 

Magnús Ragnarsson
Vík
868 0546
"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
Vík
868 0546
"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
Re: Íslenskt orð yfir Penetration??
Held að Sectional Density sé stytting úr Cross Sectional Density þar sem Cross Section er þversnið (kúlu/hlutar). Því má kannski nota þversniðsþéttni (ekki þjált...) eða sniðþéttni (skárra). Þetta er skylt pælingum um eðlisþyngd hluta (specific density) sem er þyngd á rúmmálseiningu (t.d. g/L).
SD er samkvæmt Chuck Hawks mælieining sem notar tommu/pund (imperial) kerfið en auðvitað má nota metraeiningar en þær gefa ekki sömu niðurstöðu.
SD er þyngd kúlu (í pundum) deilt með þvermáli (diameter) í tommum í öðru veldi:
SD=lb/d^2
Til að finna þyngd kúlu í pundum má deila með 7000 (grain/pound) í grain töluna.
140 gr kúla í 6,5 mm hefur þá þyngdina:
140 gr/7000 gr/lb = 0,02 lb
og er í USA talin vera Cal 264 eða 0,264 tommur í þvermál (6,5 er í raun 6,71 mm).
SD er þá:
SD = 0,02/(0,264)^2 = 0,287 sem er í klassa með 270 gr cal 375 sbr grein Chuck Hawks á link að ofan.
Úff, þetta varð nú kennaralegra en til stóð....
kveðja,
Sveinn

Með kveðju,
Sveinn Aðalsteinsson
Sveinn Aðalsteinsson
- Aflabrestur
- Posts: 490
- Joined: 25 Feb 2012 08:01
- Location: Sauðárkrókur
Re: Íslenskt orð yfir Penetration??
Sæll Maggi.
Held að normal ör sé uþb. 450 grein og á ca. 250 fps. miðað við þokkalegann boga.
Held að normal ör sé uþb. 450 grein og á ca. 250 fps. miðað við þokkalegann boga.
kv.
Jón (Jónbi) Kristjánsson
Sauðárkróki
"I don´t have to be careful, i´ve got a gun" Homer J. Simpson
Jón (Jónbi) Kristjánsson
Sauðárkróki
"I don´t have to be careful, i´ve got a gun" Homer J. Simpson
- maggragg
- Skytta
- Posts: 1287
- Joined: 02 Jul 2010 07:59
- Fullt nafn: Magnús Ragnarsson
- Location: Vík
- Contact:
Re: Íslenskt orð yfir Penetration??
Takk, þarf víst þvermálið líka 

Magnús Ragnarsson
Vík
868 0546
"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
Vík
868 0546
"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
- Aflabrestur
- Posts: 490
- Joined: 25 Feb 2012 08:01
- Location: Sauðárkrókur
Re: Íslenskt orð yfir Penetration??
sæll.
6,5-7 mm er að ég held algengt fyrir svona meðal örvar
Annars leiðréttir Indi mig ef ég er í ruglinu með þetta.
6,5-7 mm er að ég held algengt fyrir svona meðal örvar
Annars leiðréttir Indi mig ef ég er í ruglinu með þetta.
kv.
Jón (Jónbi) Kristjánsson
Sauðárkróki
"I don´t have to be careful, i´ve got a gun" Homer J. Simpson
Jón (Jónbi) Kristjánsson
Sauðárkróki
"I don´t have to be careful, i´ve got a gun" Homer J. Simpson
- maggragg
- Skytta
- Posts: 1287
- Joined: 02 Jul 2010 07:59
- Fullt nafn: Magnús Ragnarsson
- Location: Vík
- Contact:
Re: Íslenskt orð yfir Penetration??
Þannig að ör sem er 6,5mm í þvermál og 450 grain hefur rúmlega þrefalt meira SD en 140 gr. kúla af sama þvermáli. Þetta án efa vegur upp á móti slagkraftinum sem er jú mikið meiri í kúlunni og er hluti af ástæðu þess að örvar virðast ekki síðri í að drepa bráðina á skjótan hátt og byssukúla.
Magnús Ragnarsson
Vík
868 0546
"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
Vík
868 0546
"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
- Bowtech
- Posts: 184
- Joined: 11 Jan 2011 12:34
- Fullt nafn: Indriði Ragnar Grétarsson
- Location: Sauðárkrókur
- Contact:
Re: Íslenskt orð yfir Penetration??
Sælir
Meðal veiði ör er frá 7,5 til 10mm í þvermál, en hún er hol að innan og flestar örvar í dag eru úr Carbon. En svo eru að koma örvar á markaðin sem eru með minna þvermál (5-7mm) en ná að halda sama styrkleika og slagkrafti
Og þá er það heildar þyngd á ör með fjöðrum, oddi og skaftið sjálft.
Þyngd á ör er frá 385gr (lágmark) til 560gr en allar þyngri örvar eru notaðar á Afríkur dýrin allt uppí 1200-1400gr
Hraðiá ör getur verið frá 220 og uppí 330fps, fer allt eftir hraða/afli á boga og hvað örin er þung.
En normal hraði er frá 240 og uppí 290 fps
En það sem skiptir mestu máli við bogveiðar er Kinetic energy. Hraðinn er góður en hann skiptir engu máli ef örin er ekki nógu þung.
Lágmarks Kinetic á:
Whitetail og minni 40 ke
Hreindýr, svart björn villigöltur 40-55 ke
Elgur, Elkur,Brúnbjörn, Kudu ofl 60 ke
Önnur dýr eins og Afríkur dýrin 70+ ke
Smá fróðleiks molar

Last edited by Bowtech on 10 May 2012 07:43, edited 2 times in total.
Kv
Indriði R. Grétarsson.
Bogaskytta Cal.308
Indriði R. Grétarsson.
Bogaskytta Cal.308
- Veiðimeistarinn
- Posts: 1917
- Joined: 17 Jul 2010 09:47
- Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
- Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal
Re: Íslenskt orð yfir Penetration??
Mig hefur alltaf langað að sjá hreindýr skotið með ör af boga, sjá viðbrögðin þegar ekki er hvellur, ég hef séð hreindýr skotið með riffli með hljóðdeifi.
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Re: Íslenskt orð yfir Penetration??
Hægt er að tala um að kúlan borist eða smjúgi inn í holdið eða gelið. Kannski mætti búa sér til eitthvert nafnorð sem byggir á þessum hugtökum, s.s. borun eða smeygni.
Bara svona hugmynd. En þetta er fyrsti póstur minn inn á þetta ágæta spjallborð og því rétt að kasta kveðju á mannskapinn.
Bara svona hugmynd. En þetta er fyrsti póstur minn inn á þetta ágæta spjallborð og því rétt að kasta kveðju á mannskapinn.

Re: Íslenskt orð yfir Penetration??
Velkominn Birgir. Að mínu matir er þetta SPJALLIÐ fyrir skyttur á Íslandi í dag.
Re: Íslenskt orð yfir Penetration??
Takk, Gísli.
Ég kíkti í ensk-íslensku orðabókina frá 1984 og þar er stungið upp á orðinu smygni.
Ég kíkti í ensk-íslensku orðabókina frá 1984 og þar er stungið upp á orðinu smygni.
Re: Íslenskt orð yfir Penetration??
Sælir.
Sögnin að smjúga fær líf í mínum huga. Að vísu dálítið tormelt þegar kemur að málfari, t.d. smýgni hæfni er ekki þjált í munni.
Innganga hljómar eins og eitthvað sem fer fram í kirkju og á þ.a.l. kannski eitthvað skilt við að drepa en annars hljómar það of hjákátlegt í mínum eyrum.
Hitt er að kúlan brýtur sér leið. Spurning hvort málfarsfrömuðir geta búið til eitthvað úr þeirri sögn, þ.e. sögnin að brjóta. T.d. brotdýpt (svona skot út í loftið).
Kv.
Sindri

Sindri Karl Sigurðsson
Re: Íslenskt orð yfir Penetration??
Gallinn hér er að enska meira tungumál nafnorða en íslenskan. Hérna er fyrsta viðbragð þýðandans að finna íslenskt orð fyrir enskt orð en betra væri að segja sama hlutinn á íslensku en að reyna að þýða beint. "Bullet penetration was one inch" = "kúlan náði eina tommu inn" en ekki "ákomudýpt var ein tomma"
-----
Jóhann Þórir Jóhannsson - SFK
Jóhann Þórir Jóhannsson - SFK
- Guðni Einars
- Posts: 31
- Joined: 25 Apr 2012 13:04
Re: Íslenskt orð yfir Penetration??
Smeygni eða smygni eru flott orð, hvað eitthvað smýgur langt. Mér hefur líka dottið í hug hvort "gegndrægni" getur náð þessu? Hvað eitthvað dregur langt í gegnum eitthvað?
Með kveðju,
Guðni Einarsson
Guðni Einarsson
Re: Íslenskt orð yfir Penetration??
Ég tek heilshugar undir þau orð að íslenskan sé sagnorðamál. Auðvitað eigum við að umorða enska textann og laga að íslenskri setningaskipan í stað þess að semja einhver nafnorð og gera textann þar með stirðan og stofnanalegan.
Re: Íslenskt orð yfir Penetration??
Reyndar rifjast það upp fyrir mér núna að í Skotvopnabókinni er talað um inndrægni (ef ég man rétt). Það er fínasta orð ef menn vilja nota nafnorð.
Re: Íslenskt orð yfir Penetration??
Sælir félagar
þettar hugtak hefur nokkuð víða merkingu í ensku máli.
Hvað um "gegnumbrot"? T.d. brjótast í gegnum óvinalínu sem er ein merking á ensku.
Það væri þá átt við hver áhrif kúlunnar væru á það sem hún brytist í gegnum eða inn í í.
Kv. Guðmundur Friðriksson

Guðmundur Friðriksson