Ad blocker detected:Our website is made possible by displaying online advertisements to our visitors. Please consider supporting us by disabling your ad blocker on our website.
Almennt um veiði eða veiðar á bráð sem ekki eru í undirflokkunum
-
karlguðna - Póstar í umræðu: 4
- Póstar:469
- Skráður:13 Feb 2013 13:46
- Fullt nafn:guðmundur karl guðnason
REGNVATN Í HLAUPI !
Ólesinn póstur
af karlguðna » 10 Sep 2014 19:17
Sælir allir,, hvað segja menn um það , þegar maður gengur til veiða í rigningu með öflugan veiðiriffil á bakinu og það kemur regnvatn í hlaupið ,,, er það ekki alveg nó nó ????? allavegana held ég að það hljóti að hafa slæm áhrif vegna aukins þrýsting í hlaupinu ! tala nú ekki um ef maður væri með mjög heita hleðslu !! ég var að spá í hvort menn séu að setja límband fyrir hlaup endann og ef maður gerði það og myndi nú gleima sér í veiðigleðinni og skjóta án þess að taka límbandið af
![Rolling Eyes :roll:](./images/smilies/icon_rolleyes.gif)
eru möguleikar á að það væri eitthað varasamt ????
hafa menn eitthvað spekúlerað í þessu ???
Elskun náungann.
BKV. Karl Guðna.
-
gkristjansson
- Skytta
- Póstar í umræðu: 1
- Póstar:250
- Skráður:02 May 2012 14:21
- Staðsetning:Ungverjaland
Ólesinn póstur
af gkristjansson » 10 Sep 2014 20:10
Sæll,
Fyrir mig þá er það þannig að ef ég er að veiða í rigningu (sem kemur allt of oft fyrir), þá einfaldlega hef ég riffilinn þannig á öxlinni að hlaupið snýr niður. Hér í Ungverjalandi þá fellur rigningin oftast beint niður en ekki í allar áttir eins og heima á klakanum
Á kíkinum er ég síðan með plastlok sem kemur í veg fyrir dropa á glerinu sem er mjög fljótgert að kippa af þegar að það kemur að því að beina græjunni að bráð.
Kveðja,
Guðfinnur Kristjánsson
-
skepnan
- Skytta
- Póstar í umræðu: 2
- Póstar:256
- Skráður:01 Apr 2012 12:35
Ólesinn póstur
af skepnan » 10 Sep 2014 20:40
Sæll Karl, menn hafa nú löngum leyst þetta vandamál með því að setja smokk framan á hlaupið. Skiptir þá engu þó skotið sé með örygginu á oddinum
Mikið hefði ég viljað sjá svipinn á ókunnugum þegar eiginkona mín kvaddi mig á hreindýraveiðar með orðunum "mundir þú ekki öruglega eftir smokkunum"
![Twisted Evil :twisted:](./images/smilies/icon_twisted.gif)
Og þetta sagði hún raunverulega
Kveðja Keli
-
baikal
- Póstar í umræðu: 1
- Póstar:33
- Skráður:16 Jul 2010 23:17
- Fullt nafn:Einar Stefánsson
- Staðsetning:Skagafjörður
-
Hafa samband:
Ólesinn póstur
af baikal » 10 Sep 2014 21:16
Notaðu litlar partíblöðrur , eru ódýrar og henta bæði á riffla og haglabyssu, færð nokkuð margar fyrir
ein rifflaðan la la la la la Kela.
Baikal.
Kveðja úr Skagafirði.
Einar Stefánsson.
-
karlguðna - Póstar í umræðu: 4
- Póstar:469
- Skráður:13 Feb 2013 13:46
- Fullt nafn:guðmundur karl guðnason
Ólesinn póstur
af karlguðna » 10 Sep 2014 21:37
Elskun náungann.
BKV. Karl Guðna.
-
gylfisig
- Póstar í umræðu: 1
- Póstar:598
- Skráður:22 Feb 2012 13:03
Ólesinn póstur
af gylfisig » 10 Sep 2014 23:16
Settu bara venjulegt tape yfir hlaupendann. Skýtur svo bara, þó teipið sé á. Ég get lofað þér því, að kúlan fer í gegn
Hef yfirleitt gert þetta svona, því ég vil ekki fá vatn inn í mín hlaup. Í stuttu máli...shoot thru it !
Kv.
Gylfi Sigurðsson
Húsavík
-
Veiðimeistarinn
- Póstar í umræðu: 1
- Póstar:1917
- Skráður:17 Jul 2010 09:47
- Fullt nafn:Sigurður Aðalsteinsson
- Staðsetning:Vaðbrekka Hrafnkelsdal
Ólesinn póstur
af Veiðimeistarinn » 11 Sep 2014 07:29
Já, þetta er allt gott og gilt, smokkur, partíblaðra, eða teip, kúlan fer ekki í gegn um neitt af þessu.
Loftþrýstingurinn úr hlaupinu er búinn að fletta teipinu af og smokkurinn og partíblaðran sprungin löngu áður en kulan yfirgefur hlaupið, kannski ekki löngu en nógu mörgum millisekundum áður til að þetta hefur eingináhrif á skotið.
Þetta er bara eins og með smokkinn í hefðbundinni notkun hann hefur engin áhrif á skotið, það kemur eftir sem áður....eða þannig.......
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
-
Feldur - Póstar í umræðu: 1
- Póstar:20
- Skráður:28 Jun 2012 09:14
Ólesinn póstur
af Feldur » 11 Sep 2014 07:56
Hef klippt fingur af einnota vettlingum (t.d. nítríl), flestir hafa box af svoleiðis í skúrnum. Þá er hægt að velja fingur eftir hlautstærð til að fá gott mát. Einnig auðvelt að kippa af fyrir skot ef menn kjósa það.
Hefur reynst mér vel.
Feldur
Ingvar Ísfeld Kristinsson
-
Gísli Snæ - Póstar í umræðu: 1
- Póstar:475
- Skráður:12 Apr 2012 21:37
Ólesinn póstur
af Gísli Snæ » 11 Sep 2014 17:03
Er með bakpoka þar sem rifflinum er rennt í sérstakan vasa og snýr hlaupið niður í honum. Góð lausn.
-
karlguðna - Póstar í umræðu: 4
- Póstar:469
- Skráður:13 Feb 2013 13:46
- Fullt nafn:guðmundur karl guðnason
Ólesinn póstur
af karlguðna » 11 Sep 2014 18:05
einmitt ,,, takk fyrir þetta,,, held ég prófi teipið
![Very Happy :D](./images/smilies/icon_e_biggrin.gif)
er hræddur um ef maður væri með "hæga" hleðslu að maður fengi bara kúluna á sama hraða til baka ef smokkurinn brestur ekki
![Geek :geek:](./images/smilies/icon_e_geek.gif)
Durex er þekktur fyrir styrk
![Twisted Evil :twisted:](./images/smilies/icon_twisted.gif)
Elskun náungann.
BKV. Karl Guðna.
-
karlguðna - Póstar í umræðu: 4
- Póstar:469
- Skráður:13 Feb 2013 13:46
- Fullt nafn:guðmundur karl guðnason
Ólesinn póstur
af karlguðna » 26 Sep 2014 21:50
Elskun náungann.
BKV. Karl Guðna.