Sælir allir,, hvað segja menn um það , þegar maður gengur til veiða í rigningu með öflugan veiðiriffil á bakinu og það kemur regnvatn í hlaupið ,,, er það ekki alveg nó nó ????? allavegana held ég að það hljóti að hafa slæm áhrif vegna aukins þrýsting í hlaupinu ! tala nú ekki um ef maður væri með mjög heita hleðslu !! ég var að spá í hvort menn séu að setja límband fyrir hlaup endann og ef maður gerði það og myndi nú gleima sér í veiðigleðinni og skjóta án þess að taka límbandið af eru möguleikar á að það væri eitthað varasamt ????
hafa menn eitthvað spekúlerað í þessu ???
Fyrir mig þá er það þannig að ef ég er að veiða í rigningu (sem kemur allt of oft fyrir), þá einfaldlega hef ég riffilinn þannig á öxlinni að hlaupið snýr niður. Hér í Ungverjalandi þá fellur rigningin oftast beint niður en ekki í allar áttir eins og heima á klakanum
Á kíkinum er ég síðan með plastlok sem kemur í veg fyrir dropa á glerinu sem er mjög fljótgert að kippa af þegar að það kemur að því að beina græjunni að bráð.
Sæll Karl, menn hafa nú löngum leyst þetta vandamál með því að setja smokk framan á hlaupið. Skiptir þá engu þó skotið sé með örygginu á oddinum
Mikið hefði ég viljað sjá svipinn á ókunnugum þegar eiginkona mín kvaddi mig á hreindýraveiðar með orðunum "mundir þú ekki öruglega eftir smokkunum" Og þetta sagði hún raunverulega
já kannski maður spari og kaupi blöðrur ,,,Keli er náttúrulega bara svo flottur áþví ,,,, hafa menn ekkert verið að nota tape ??? það kostar næstum ekki neitt
en er það kannski alveg alódýrasta meðalið og ekki hæft á Tikku ?
Settu bara venjulegt tape yfir hlaupendann. Skýtur svo bara, þó teipið sé á. Ég get lofað þér því, að kúlan fer í gegn
Hef yfirleitt gert þetta svona, því ég vil ekki fá vatn inn í mín hlaup. Í stuttu máli...shoot thru it !
Já, þetta er allt gott og gilt, smokkur, partíblaðra, eða teip, kúlan fer ekki í gegn um neitt af þessu.
Loftþrýstingurinn úr hlaupinu er búinn að fletta teipinu af og smokkurinn og partíblaðran sprungin löngu áður en kulan yfirgefur hlaupið, kannski ekki löngu en nógu mörgum millisekundum áður til að þetta hefur eingináhrif á skotið.
Þetta er bara eins og með smokkinn í hefðbundinni notkun hann hefur engin áhrif á skotið, það kemur eftir sem áður....eða þannig.......
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Hef klippt fingur af einnota vettlingum (t.d. nítríl), flestir hafa box af svoleiðis í skúrnum. Þá er hægt að velja fingur eftir hlautstærð til að fá gott mát. Einnig auðvelt að kippa af fyrir skot ef menn kjósa það.
einmitt ,,, takk fyrir þetta,,, held ég prófi teipið er hræddur um ef maður væri með "hæga" hleðslu að maður fengi bara kúluna á sama hraða til baka ef smokkurinn brestur ekki Durex er þekktur fyrir styrk