Jón bóndi takk fyrir síðast, er við sigldum höfin suður og austur
Að sjálfsögðu voru stígvélin með í siglingunni
Stígvélin bóndans um borð,
þar bíða eftir íslenskri storð.
Þau komast brátt heim,
með bóndanum þeim.
Er fremur á fuglunum morð
Stígvélin stukku frá þér,
stærðin hún passaði mér.
Þau komust ei heim
með bóndanum þeim
sem lánlaus þau lét burt frá sér
Nú ganga þau um mela holt og heiðar,
á hreindýra refa og fugla veiðar.
En bondinn er sko,
berfættur svo.
Hann sárfættur sullar nú leiðir ógreiðar
