Crubs stígvél til sölu, camo

Jón Bóndi
Posts: 5
Joined: 05 Jan 2014 20:53
Fullt nafn: Jón H Ragnarsson

Crubs stígvél til sölu, camo

Unread post by Jón Bóndi »

crubs.jpg
crubs.jpg (9.76 KiB) Viewed 3008 times
Er með 1 par af crubs stígvélum til sölu. Ný, ónotuð og enn í kassanum Stærðin er 11 (45). Þetta eru svipuð stígvélunum sem hlað er að selja en ekki alveg sama týpa samt.
Verð 15 þús.

GSM: 6963552, Jón
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Crubs stígvél til sölu, camo

Unread post by Veiðimeistarinn »

Jón bóndi takk fyrir síðast, er við sigldum höfin suður og austur 8-)
Að sjálfsögðu voru stígvélin með í siglingunni :P

Stígvélin bóndans um borð,
þar bíða eftir íslenskri storð.
Þau komast brátt heim,
með bóndanum þeim.
Er fremur á fuglunum morð :lol:

Stígvélin stukku frá þér,
stærðin hún passaði mér.
Þau komust ei heim
með bóndanum þeim
sem lánlaus þau lét burt frá sér :lol:

Nú ganga þau um mela holt og heiðar,
á hreindýra refa og fugla veiðar.
En bondinn er sko,
berfættur svo.
Hann sárfættur sullar nú leiðir ógreiðar :lol: :lol: :lol: :lol:
Attachments
Já, já, stígvélin eru komin í góðan félagsskap........
Já, já, stígvélin eru komin í góðan félagsskap........
....en Jón Bóndi situr á polla um borð og syrgir stígvélin góðu sem voru höfð út úr honum á niðursettu verði!
....en Jón Bóndi situr á polla um borð og syrgir stígvélin góðu sem voru höfð út úr honum á niðursettu verði!
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
User avatar
sindrisig
Posts: 313
Joined: 09 Oct 2010 08:45
Location: Neskaupstaður

Re: Crubs stígvél til sölu, camo

Unread post by sindrisig »

Þetta er alveg baneitrað ....

Mikið brosi ég breitt. frábært Siggi, þessi mynd og nafnið aftan á hjálminum er algerlega punkturinn. En hvað er málið með Diet Colað? Þú drekkur bara coke light...
Sindri Karl Sigurðsson
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Crubs stígvél til sölu, camo

Unread post by Veiðimeistarinn »

Diet Cola eða ekki Cola Light það er spurningin, keypti þessa Diet elsku um borð og miklu fleiri auðvitað, þetta var jú hálfs mánaðar túr, Goðafossbritinn hefur sennilega byrgt sig í útlandinu og það fékkst ekki annað þarna um borð, svo Diet Cola þegar ekki er Cola Ligt að fá, það er ekki spurningin :lol:
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
User avatar
Aflabrestur
Posts: 490
Joined: 25 Feb 2012 08:01
Location: Sauðárkrókur

Re: Crubs stígvél til sölu, camo

Unread post by Aflabrestur »

Sælir.
Er ekki ráð að seljandi komi framm undir fullu nafni????
Eða gildir það bara um þá sem Siggi þekkir ekki persónulega!!!!!!!! Talandi um að sumir séu jafnari en aðrir, og samkvæmt því ætti að eiða þessum notanda eins og fordæmi eru fyrir
kv.
Jón (Jónbi) Kristjánsson
Sauðárkróki
"I don´t have to be careful, i´ve got a gun" Homer J. Simpson
User avatar
maggragg
Skytta
Posts: 1287
Joined: 02 Jul 2010 07:59
Fullt nafn: Magnús Ragnarsson
Location: Vík
Contact:

Re: Crubs stígvél til sölu, camo

Unread post by maggragg »

Sæll Jón

Það er nóg að menn skrifi fullt nafn í prófíl, enda sérðu þá nafnið ef þú smellir á notendanafn viðkomandi. Þegar það skilyrði er ekki uppfyllt, þ.e. að ekki er nafn í undirskrift, né í prófíl, þá er notandinn ekki undir nafni.
Magnús Ragnarsson
Vík
868 0546

"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
User avatar
Aflabrestur
Posts: 490
Joined: 25 Feb 2012 08:01
Location: Sauðárkrókur

Re: Crubs stígvél til sölu, camo

Unread post by Aflabrestur »

Sælir.
Biðst afsökunar á fyrri ummælum vissi bara ekki af þessum fídus :oops:
Mér hefur bara fundist sumir sleppa frekar ódýrt frá þessari "fullt nafn í undirskrift" reglu meðan það er hjólað í aðra af fullum þunga, Þannig þarna er ég komin meða skýringu á þessu misræmi ;)
Ef stjórnendur telja þetta í lagi ætla ég ekki að kvarta.
Enn og aftur afsakið :oops:
kv.
Jón (Jónbi) Kristjánsson
Sauðárkróki
"I don´t have to be careful, i´ve got a gun" Homer J. Simpson
User avatar
maggragg
Skytta
Posts: 1287
Joined: 02 Jul 2010 07:59
Fullt nafn: Magnús Ragnarsson
Location: Vík
Contact:

Re: Crubs stígvél til sölu, camo

Unread post by maggragg »

Ekkert mál, ég fylgi þessari reglu allavega :)
Magnús Ragnarsson
Vík
868 0546

"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
Jón Bóndi
Posts: 5
Joined: 05 Jan 2014 20:53
Fullt nafn: Jón H Ragnarsson

Re: Crubs stígvél til sölu, camo

Unread post by Jón Bóndi »

Takk fyrir síðast Siggi. Þú ert mikill sjóari inn við beinið, það get ég staðfest ;-)
Væntanlega er veiðigenið í sókn eftir að þú fékkst stígvélin góðu
Post Reply