Leitin að ísbirninum...

Almennt um veiði eða veiðar á bráð sem ekki eru í undirflokkunum
User avatar
maggragg
Skytta
Posts: 1287
Joined: 02 Jul 2010 07:59
Fullt nafn: Magnús Ragnarsson
Location: Vík
Contact:

Leitin að ísbirninum...

Unread post by maggragg »

Þá er einn björninn ennþá kominn á land og verður að öllum líkindum skotinn.

http://www.ruv.is/frett/leit-hefst-ad-nyju

Image
Magnús Ragnarsson
Vík
868 0546

"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
Stefán Einar
Posts: 18
Joined: 05 May 2012 20:49

Re: Leitin að ísbirninum...

Unread post by Stefán Einar »

Á mbl.is í dag hvetur Hjörtur Magnason, héraðsdýralæknir ekkert minna en cal.338 Magnum til að fella hvítabjörn og vitnar þar í "alþjóðlegar kröfur", máli sínu til stuðnings.
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2012/ ... dsaaetlun/

Þótt ég sé ekki að hvetja til þess, þá rekur mig þó minni til að einn hafi verið felldur á Ströndum með 22. calibera riffli...

Menn hafa verið ötulir við að ráðleggja hentug caliber á ýmis dýr- en mér er spurn hvaða caliber væri æskilegt á hvítabjörn?
Með kveðju frá Sviss
Stefán Einar Stefánsson
User avatar
maggragg
Skytta
Posts: 1287
Joined: 02 Jul 2010 07:59
Fullt nafn: Magnús Ragnarsson
Location: Vík
Contact:

Re: Leitin að ísbirninum...

Unread post by maggragg »

Ég væri sammála hérðaðsdýralækninum um .338 Magnum eitthvað sem æskilegt. Kúlan þyrfti að vera þung, til að bera sem mestan slagkraft, ekki of viðkvæm og opnast strax en helst að skila öllum slagkraftinum í dýrið. Sverari kúla er tvímælalaust kostur.

Ef við horfum á það sem almennt er talið lágmark á hreindýr, og hver massi hreindýrs ( 40 - 150 kg ) er á móti hvítabirni ( 400 - 800 kg. ), ásamt því að hvítabjörn er með mun þykkari feld og allt mun sterkbyggðarar ásamt því að vera rándýr og þau eru þekkt fyrir það að vera mun skotharðari en klaufdýr og aðrar grasætur þá tel ég að til að tryggja mann sjálfan að maður eigi að miða við eitthvað mjög stórt. Grimm rándýr ráðast líka gegn ógninni og berjast fram í rauðan dauðann og því mun lífseigari ef þau særast. Út frá þessum pælingum þá gildir því meira, því betra. .300 Win Mag með 200 grain kúlu eða 9,3 eitthvað kaliber. 12 gauge slug á styttri færum. Minni cal duga örugglega en það er mun meiri hætta á mistökum og að fyrstu skotin nái ekki að kála dýrinu.
Magnús Ragnarsson
Vík
868 0546

"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
User avatar
Guðni Einars
Posts: 31
Joined: 25 Apr 2012 13:04

Re: Leitin að ísbirninum...

Unread post by Guðni Einars »

Grænlenska landsstjórnin gerði kröfu um 30.06 sem minnsta löglega kaliber til veiða á hvítabjörnum, samanber þetta:

Stk. 3. Fangst af isbjørn må kun ske ved brug af riffel, hvor mindste lovlige kaliber er 30.06 (7,62
mm). Anvendelse af hel- og halvautomatiske rifler er ikke tilladt.

Í lauslegri þýðingu: Aðeins má veiða hvítabjörn með riffli og minnsta löglega skothylkið er 30.06 (7,62 mm). Bannað er að nota al- og hálfsjálfvirka riffla.

Reglugerðin er hér http://dk.nanoq.gl/Emner/Landsstyre/Dep ... B5B6B.ashx

Ég fann ekki yngri reglugerð eða breytingu á þessari við snögga leit.

Hvítabirnir sem hingað hafa komið á síðustu árum hafa verið frá því að vera tæp 100 kg og upp í vel á þriðja hundrað kíló. Stórir hvítabirnir eru stærstu rándýr jarðar á landi. Það er betra að fella þessi dýr hratt og örugglega og þess vegna er sjálfsagt að taka til greina viðvörunarorð Hjartar dýralæknis.
Með kveðju,
Guðni Einarsson
User avatar
Birgir stranda
Posts: 37
Joined: 25 Apr 2012 22:05

Re: Leitin að ísbirninum...

Unread post by Birgir stranda »

Var að skoða myndir af birninum á ruv.is.
Mér sýnist þetta nú bara vera útselsurta sem er að kóka þarna á víkinni.
En myndirnar eru nú svo sem ekki skýrar.
Birgir Guðmundsson,
Grundarfirði
konnari
Posts: 343
Joined: 12 Mar 2012 15:04

Re: Leitin að ísbirninum...

Unread post by konnari »

Ég myndi ekki nota minni caliber en 30-06 eða 300wm með 200 gr. kúlu á hvítabjörn. 30-06 er t.d. mjög algengt á Grænlandi. Úr mínum byssuskáp myndi ég nota annaðhvort 338wm með 225-250gr. kúlu eða 9.3x62 með 250-286gr. kúlu. Ég er alveg sammála þessu héraðsdýralækni um að nota „alvöru“ veiðiriffil til að fella hvítabjörn bæði hratt og örugglega.....það er algjörlega út í hött að vera nota einhverja „tófu“ riffla í svona tilfelli þótt það sér hægt eins og dæmin sýna að drepa ísbjörn fyrir rest með slíku verkfæri.
Kv. Ingvar Kristjánsson
konnari
Posts: 343
Joined: 12 Mar 2012 15:04

Re: Leitin að ísbirninum...

Unread post by konnari »

Er eitthvað vitað hvaða caliber maðurinn til vinstri á myndinni er með á öxlinni ?
Kv. Ingvar Kristjánsson
User avatar
Stefán_Jökull
Posts: 76
Joined: 28 May 2012 10:41
Location: Skagafjörður

Re: Leitin að ísbirninum...

Unread post by Stefán_Jökull »

Ef þetta er sami maður og talað var við í fréttum, er hann með Rössler .243.
Kv. Stefán Jökull
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Leitin að ísbirninum...

Unread post by Veiðimeistarinn »

Ég mundi nota eitthvert létt og hratt kaliber, þá þyrfti ég ekki eins nálægt 8-) Sennilega bara það sem væri við hendina ef svo ólíklega vildi til að ég rækist á hvítabjörn.
Það yrði þá eftir atvikum 6,5-284 með 100 gr. bt. eða 222 Rem. með 40 gr. V-Max bakkað upp með efra hlaupinu á combóinu GA12 er alltf með slugg i byssutöskunni.
Þetta mundi ég setja undir eyrað á bangsa úr rifflunum og sluggið eftir aðstæðum í þá hlið sem að mér smeri, ef hann gerðist nærgöngull.
Félagi minn sem liggur með mér a greninu núna mundi til dæmis nota 22-250 með 55 gr. bt.
Aðal atriðið er að halda kúlinu á hverju sem gengur í samskiptunum við bangsa, þá er gerð vopnsis ekki aðalatriðið. Alls ekki fara að gubba af stressi, það er bara tímasóun. :mrgreen:
Indriði, það er leyft að veiða svartbjörn í Kanada með boga, svo þú ert líka gjaldgengur í þetta bjarnaskytterí fyrir norðan :)
Haganesnbjörninn var til dæmis skotinn með 222 Rem. og tókst með ágætum, einnig björninn sem skotinn var í Þistilfirðinum, þessir birnir voru jafn steindauðir og sá sem skotinn var með einhverri fallbyssu á Hrauni á Skaga, 300 Mag. eða 338. og sá sem skotinn var með 3006 á Þverárfjallinu, þó hann fengi öryggisskot úr 6,5-284.
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
konnari
Posts: 343
Joined: 12 Mar 2012 15:04

Re: Leitin að ísbirninum...

Unread post by konnari »

Gat nú verið.....með 243 :shock: sem rétt dugar á hreindýr :o

Menn eru ekki alltaf svo heppnir að lenda í aðstöðu þar sem hægt er að skjóta björninn í hausinn...t.d. ef hann er á mikilli hreyfingu þá er betra að vera með eitthvað öruggara.....þ.e. 30 cal. eða stærra !

Björninn sem var skotinn í þistilfirði var nú bara pínu kríli.....2 ára húnn ef ég man rétt....ég myndi alla veganna ekki vilja vera með 222 í höndunum fyrir framan 600 kg. alvöru Hvítabjörn :lol:

Ég heyrði að bangsinn sem var skotinn á Hrauni á Skaga hefði verið tekinn með 375 H&H.....veit ekki meir....
Last edited by konnari on 06 Jul 2012 22:56, edited 2 times in total.
Kv. Ingvar Kristjánsson
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Leitin að ísbirninum...

Unread post by Veiðimeistarinn »

Jú, alveg rétt Konnari man það nuna, þekki skyttuna. :D
Haganesbjörninn var líka ungdýr.
Grímseyjarbjörninn var fullorðið dýr var það ekki Ingvar?
Þú veist með hverju hann var skotinn!
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
User avatar
maggragg
Skytta
Posts: 1287
Joined: 02 Jul 2010 07:59
Fullt nafn: Magnús Ragnarsson
Location: Vík
Contact:

Re: Leitin að ísbirninum...

Unread post by maggragg »

Hérna er ágætis grein um stór dýr og hvað er notað:
http://www.chuckhawks.com/rifles_dangerous_game.htm

Það er hægt að nota þessi hefðbundnu caliber sem við þekkjum hér heima, og jafnvel með léttum kúlum en það krefst mun meiri færni heldur en að vera með nægan slagkraft. Léttu kúlurnar eins og 100 grain hafa engann slagkraft sem heita má og því skiptir miklu meira máli að hitta nákvæmlega. Ég myndi sjálfur ekki þora að nota Ballistic tip sem dæmi þar sem mikil hætta er á að kúlan springi í feldinum og næði ekki inn að mikilvægum líffærum, nema jú ef um nákvæmt hausskot er að ræða. Í stressi er það oft ekki inn í myndinni. Í fyrrgreindri grein er ástæðan fyrir þungum sverum kúlum auðvitað sú að slagkrafturinn og svokallað "stopping power" er svo mikið og það skiptir máli ef dýr ræðst að manni. Þetta er alþekkt að dýr stoppa ekki þó svo skotið sé á þau mörgum skotum, þar sem þau einfaldlega hafa ekki nægt stopping power. Ég get hent inn tölum um slagkraft mismunandi kúlna hér inn ef áhugi ef fyrir því.

Sem dæmi þá er sami slagkraftur úr .243 með 100 graina Gameking kúlu á 100 metrum eins og úr .44 Magnum skammbyssu með .380 grain kúlu á point blank. Hinsvegar er líklegra að .44 kúlan stoppi betur þar sem hún er sverari og fer síður í gegn.
Magnús Ragnarsson
Vík
868 0546

"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
User avatar
Bowtech
Posts: 184
Joined: 11 Jan 2011 12:34
Fullt nafn: Indriði Ragnar Grétarsson
Location: Sauðárkrókur
Contact:

Re: Leitin að ísbirninum...

Unread post by Bowtech »

Svo ég svari nú Sigurði.

Bogveiðar eru stundaðar á ísbjörnum í Alaska og Kanada.. Miðað við þeirra lágmarks kröfur til að veiðar ísbjörn þá er boginn sem ég á nógu öflugur. En ég myndi hins vega vilja hafa hann aðeins öflugri.

Ísbjarnaveiðar með boga eru stundaðar þannig að um 10-20 hundum er sleppt lausum og þeir eiga að trufla ísbjörnin þar til komið er færi sem er um 20-40m. Þá held ég að adrenalinið sé komið á fullt.

Það eru um ca 36+ ísbirnir veiddir í Alaska með boga á hverju ári og svipað í Kanada. Aðeins eru valdir birnir sem eru orðnir vel fullorðnir, lasburða eða annað og yfirleitt karldýr sjaldan birnur.

Til samanburðar þá mæla yfirvöld í Alaska og Kanada að notað sé að lágmarki 300w mag með 220 graina kúlu.

Vona að þetta svari einhverju. :D
Kv
Indriði R. Grétarsson.
Bogaskytta Cal.308
User avatar
Gisminn
Posts: 1349
Joined: 29 Aug 2011 21:47
Location: Blönduós

Re: Leitin að ísbirninum...

Unread post by Gisminn »

Aumingja bangsi hann er bara misskilinn og þetta gerðist þegar ég otaði að honum 6,5x55 ;)
Attachments
564081_4168626904750_1278359400_n.jpg
564081_4168626904750_1278359400_n.jpg (31.19 KiB) Viewed 3845 times
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
Einar P
Posts: 45
Joined: 24 Apr 2012 18:53
Location: Svíþjóð

Re: Leitin að ísbirninum...

Unread post by Einar P »

Það er alltaf gaman að sjá svona fullyrðingar ein og þessa um nokkursskonar alheims kröfu um lágmarks kaliber til bjarnarveiða. Svona til upplýsinga þá er krafan hér í Svíþjóð til að skjóta björn klass 1 vopn og lágmarkið þar er 6,5*55, reyndar er 6,5x55 alveg á mörkunum að vera klass 1og minnstu skotin í hann eru klass 2. Ég hef ekki séð neinar ransókinr á því með hvaða kaliberi menn eru að skjóta birni hér en flestir eru að nota 7,62 - 9 mm riffla sýnist mér.
Kveðja frá Svíþjóð.
Einar P.
Post Reply