Ég mundi nota eitthvert létt og hratt kaliber, þá þyrfti ég ekki eins nálægt

Sennilega bara það sem væri við hendina ef svo ólíklega vildi til að ég rækist á hvítabjörn.
Það yrði þá eftir atvikum 6,5-284 með 100 gr. bt. eða 222 Rem. með 40 gr. V-Max bakkað upp með efra hlaupinu á combóinu GA12 er alltf með slugg i byssutöskunni.
Þetta mundi ég setja undir eyrað á bangsa úr rifflunum og sluggið eftir aðstæðum í þá hlið sem að mér smeri, ef hann gerðist nærgöngull.
Félagi minn sem liggur með mér a greninu núna mundi til dæmis nota 22-250 með 55 gr. bt.
Aðal atriðið er að halda kúlinu á hverju sem gengur í samskiptunum við bangsa, þá er gerð vopnsis ekki aðalatriðið. Alls ekki fara að gubba af stressi, það er bara tímasóun.
Indriði, það er leyft að veiða svartbjörn í Kanada með boga, svo þú ert líka gjaldgengur í þetta bjarnaskytterí fyrir norðan
Haganesnbjörninn var til dæmis skotinn með 222 Rem. og tókst með ágætum, einnig björninn sem skotinn var í Þistilfirðinum, þessir birnir voru jafn steindauðir og sá sem skotinn var með einhverri fallbyssu á Hrauni á Skaga, 300 Mag. eða 338. og sá sem skotinn var með 3006 á Þverárfjallinu, þó hann fengi öryggisskot úr 6,5-284.