*ALLT SELT* Tikka Bolt Shroud til sölu

User avatar
TotiOla
Posts: 406
Joined: 07 Mar 2012 21:21
Location: 210 Garðabæ

*ALLT SELT* Tikka Bolt Shroud til sölu

Unread post by TotiOla »

Sælir

Eftir að hafa fengið bolt shroud-ið af annarri Tikkunni minni í andlitið fór ég að leita að replacement stykki. Fann að lokum nákvæma eftirlíkingu úr stáli, en original stykkið er úr plasti og á það því til að brotna af með fyrrgreindum afleiðingum. Ég má bara teljast "stálheppinn" að það fór ekki í augað á mér :roll:

Allavega, ef einhver hefur áhuga þá tók ég nokkur aukastykki með og langar að bjóða ykkur Tikka eigendum. *ALLT SELT*
Bolt Shroud.jpg
Er staðsettur í Garðabæ. Getið haft samband í einkaskilaboðum eða á thorarinnola@gmail.com.
Last edited by TotiOla on 25 Aug 2012 15:11, edited 1 time in total.
Mbk.
Þórarinn Ólason
Bc3
Posts: 156
Joined: 15 Jun 2012 16:15
Location: Grindavík

Re: Tikka eigendur athugið - Bolt Shroud til sölu

Unread post by Bc3 »

frábært :D en afhverju fékstu það i andlitið?
Kv Alfreð F. Bjōrnsson
Gísli Snæ
Posts: 475
Joined: 12 Apr 2012 21:37

Re: Tikka eigendur athugið - Bolt Shroud til sölu

Unread post by Gísli Snæ »

Mæli með þessu. Keypti eitt af Tóta - tók 1 mín að smella þessu á. Tek ekki áhættu á að lenda í því sama.
Kveðja,
Gísli Snæbjörnsson
gislisnae@islandia.is
User avatar
TotiOla
Posts: 406
Joined: 07 Mar 2012 21:21
Location: 210 Garðabæ

Re: Tikka eigendur athugið - Bolt Shroud til sölu

Unread post by TotiOla »

Bc3 wrote:frábært :D en afhverju fékstu það i andlitið?
Það virðist bara hafa verið orðið það veikburða að það þurfti ekki meira til en eitt skot með þyngri kúlu. Hefur væntanlega verið komin sprunga í það og við recoil-ið þá skaust það bara beint aftur á bak og hafnaði í kinnbeininu á mér, ca. centimeter fyrir neðan augað.
Gísli Snæ wrote:Mæli með þessu. Keypti eitt af Tóta - tók 1 mín að smella þessu á. Tek ekki áhættu á að lenda í því sama.
Sæll Gísli. Gott að heyra að þú lentir ekki í neinum vandræðum með þetta :) Enda ekki við því að búast.

Fyrir þá sem hafa aldrei tekið þetta í sundur þá er hér myndband sem sýnir þetta:
http://www.youtube.com/watch?v=wcu2zOfX6V0
Mbk.
Þórarinn Ólason
Bc3
Posts: 156
Joined: 15 Jun 2012 16:15
Location: Grindavík

Re: Tikka eigendur athugið - Bolt Shroud til sölu

Unread post by Bc3 »

fékk eitt stainless aðan og snona lýtur það út. Gæti ekki verið sáttari :D

Image
Kv Alfreð F. Bjōrnsson
User avatar
TotiOla
Posts: 406
Joined: 07 Mar 2012 21:21
Location: 210 Garðabæ

Re: Tikka eigendur athugið - Bolt Shroud til sölu

Unread post by TotiOla »

Sælir
Gott að heyra að þú ert ánægður með þetta Alli.
Svona lítur þetta út hjá mér á Tikkunni í SS.
Attachments
T3 SS Bolt Shroud
T3 SS Bolt Shroud
2012-07-19 22.05.24.jpg (71.81 KiB) Viewed 3842 times
Mbk.
Þórarinn Ólason
User avatar
TotiOla
Posts: 406
Joined: 07 Mar 2012 21:21
Location: 210 Garðabæ

Re: *ALLT SELT* Tikka Bolt Shroud til sölu

Unread post by TotiOla »

Nú eru öll stykkin frátekin og að því gefnu að allt gangi eftir þá er sendingin uppseld.

Hér er mynd af svörtu týpunni (fyrir þá sem eru búnir að panta en eiga eftir að greiða/fá afhent).
Bolt Shroud - Svart
Bolt Shroud - Svart
Tikka T3 Bolt Shroud Black.jpg (35.28 KiB) Viewed 3754 times
Mbk.
Þórarinn Ólason
User avatar
Morri
Posts: 116
Joined: 03 Oct 2012 22:07
Location: Efri-Hólum,Núpasveit við Öxarfjörð. Grenjavinnslusvæði: Austursvæði Melrakkasléttu

Re: *ALLT SELT* Tikka Bolt Shroud til sölu

Unread post by Morri »

Sælir

Hafa einhverjir fleiri lent í því að þetta brotni á Tikkunum? Einstakt tilfelli eða algengt?

Hafa menn pantað svona síðan þetta "seldist upp"??
Ómar Gunnarsson
morri(at)kopasker.is

Hvert skott er sigur
User avatar
TotiOla
Posts: 406
Joined: 07 Mar 2012 21:21
Location: 210 Garðabæ

Re: *ALLT SELT* Tikka Bolt Shroud til sölu

Unread post by TotiOla »

Morri wrote:Sælir
Hafa einhverjir fleiri lent í því að þetta brotni á Tikkunum? Einstakt tilfelli eða algengt?
Hafa menn pantað svona síðan þetta "seldist upp"??
Sæll

Eftir að þetta gerðist hjá mér þá komst ég að því (með aðstoð Google) að þetta er algengara en ég hefði haldið. Ég ákvað svo að taka svona fyrir frænda minn líka, að honum óspurðum, þar sem hann á alveg eins Tikku og ég. Bara í .308 cal. Þegar ég mætti til hans og gaf honum nýtt bolt shroud kom í ljós að það var sprunga í hans.

Taka skal fram að sprungurnar virðast oft á tíðum ekki sjást, nema vel sé að gáð (t.d. með því að setja smá spennu á stykkið eða glenna það aðeins í sundur). Líklega var bara tímaspursmál hvenær þetta hefði skotist af hjá honum.

Ég held að fæstir séu mikið að skoða bolt shroud-in hjá sér og þ.a.l. komi þetta ekki mikið upp. Eins eru kannski stærri hluti Tikka-eigenda ekki að skjóta mjög mikið og því ekki mikið álag á stykkinu. Þeir sem svo skjóta mikið virðast vilja (og hafa verið að) skipta þessu út áður en eitthvað kemur upp á. Þ.e.a.s. þeir sem hafa þá ekki lent í því að þetta skjótist af.

Allavega, þetta virðist vera ákveðinn galli í Tikkunum og ég mæli með því að sem flestir taki ekki sénsinn og skipti plastdótinu út í staðinn fyrir að fá nýtt plaststykki (eins og mér var boðið). Þetta er ekki mikill peningur ef mönnum er annt um sjónina ;)
Mbk.
Þórarinn Ólason
karlguðna
Posts: 471
Joined: 13 Feb 2013 13:46
Fullt nafn: guðmundur karl guðnason

Re: *ALLT SELT* Tikka Bolt Shroud til sölu

Unread post by karlguðna »

Já það er óskemtilegt að eiga von á þessu, var að versla eina tikku og hefði viljað skipta þessu út, er ekki spurning um að tala við umboðið og a.t.h. hvort þeir vilji ekki gera eitthvað í málinu ef þetta er framleiðslugalli ??!! hvernig er með þessar byssur sem þetta hefur komið fyrir á ,voru þær ekki í ábyrgð ?
Elskun náungann.
BKV. Karl Guðna.
User avatar
TotiOla
Posts: 406
Joined: 07 Mar 2012 21:21
Location: 210 Garðabæ

Re: *ALLT SELT* Tikka Bolt Shroud til sölu

Unread post by TotiOla »

karlguðna wrote:Já það er óskemtilegt að eiga von á þessu, var að versla eina tikku og hefði viljað skipta þessu út, er ekki spurning um að tala við umboðið og a.t.h. hvort þeir vilji ekki gera eitthvað í málinu ef þetta er framleiðslugalli ??!! hvernig er með þessar byssur sem þetta hefur komið fyrir á ,voru þær ekki í ábyrgð ?
Sæll

Ég fór með þetta mál til söluaðila/umboðsaðila og þeir buðust til þess að panta nýtt svona stykki fyrir mig (á einhverjum vikum).

Ég hafði hins vegar ekki áhuga á því eftir ofangreinda upplifun og líður mikið betur með almennilegt bolt shroud fyrir framan andlitið á mér.
Mbk.
Þórarinn Ólason
User avatar
Morri
Posts: 116
Joined: 03 Oct 2012 22:07
Location: Efri-Hólum,Núpasveit við Öxarfjörð. Grenjavinnslusvæði: Austursvæði Melrakkasléttu

Re: *ALLT SELT* Tikka Bolt Shroud til sölu

Unread post by Morri »

Sælir

Ég smellti þessu stykki af tikkunni minni áðan og viti menn. Það er sprunga í þessu stykki!
Ómar Gunnarsson
morri(at)kopasker.is

Hvert skott er sigur
Gísli Snæ
Posts: 475
Joined: 12 Apr 2012 21:37

Re: *ALLT SELT* Tikka Bolt Shroud til sölu

Unread post by Gísli Snæ »

Fyrst að Tóti er búinn með sín þá er bara að panta.

Hef sjálfur pantað héðan, boltahandfang og shroud: www.tikkaperformance.com

Félagi minn pantaði héðan um daginn (þeir framleiða þetta - sama og á tikkaperformance), það tók stuttan tíma og allt gekk vel: www.hss.net.au
Kveðja,
Gísli Snæbjörnsson
gislisnae@islandia.is
joivill
Posts: 46
Joined: 26 Jun 2012 20:01

Re: *ALLT SELT* Tikka Bolt Shroud til sölu

Unread post by joivill »

Sælir félagar, Vegna þessarar umræðu hafði ég samband við Sako og fékk eftir farandi svar sem ég sendi hér með, þar segir að eingin vandræði hafi komið upp varðandi þetta, og er ég sammála þeim með það , hef stundum skift um þetta og stundum hafa menn brotið þetta þegar þeir hafa verið að nota rang aðferð til að ná þessu af, en það er tiltölulega auðvelt, eins og myndbandið hér á undan segir til um, þetta verður til von bráðar hjá umboðsaðilanum.
Svar frá Sako
Hi Johann,
We have not had a problem with Tikka T3 bolt shrouds and not have to worry about this. Because, bolt shroud does not lock the firing pin. Bolt handle lock the firing pin in place. Bolt shroud is only dust cover.
Þakka ykkur fyrir
Jói byssusmiður í Ellingsen
Jóhann Vilhjálmsson byssusmiður
www.icelandicknives.com
j.vilhjalmsson@simnet.is
User avatar
TotiOla
Posts: 406
Joined: 07 Mar 2012 21:21
Location: 210 Garðabæ

Re: *ALLT SELT* Tikka Bolt Shroud til sölu

Unread post by TotiOla »

joivill wrote:... þar segir að eingin vandræði hafi komið upp varðandi þetta, og er ég sammála þeim með það ...
Sæll Jóhann
Áhugavert svar þetta :roll: en svo sem ekki við öðru að búast af framleiðanda. Framleiðendur neita yfirleitt göllum þangað til þeir komast ekki upp með það lengur. Hægt er að finna mörg fræg atvik t.d. hjá bílaframleiðendum. En ég ætla ekki að rífast um það hér.

Netið segir manni í raun mun meira en svona svar frá Sako, þar sem mjög margir aðrir en ég hafa lent í þessu og tjáð óánægju sína með þau svör sem framleiðendur og umboðsaðilar veita. Veit ég m.a. um fjóra hér á landi (þekkjandi ekki mjög marga Tikka eigendur) sem fundið hafa sprungur eða brot í sínu bolt shroud-i eftir að ég vakti athygli á þessu.

Fyrir utan þessa yfirlýsingu um að ekkert vandamál sé til staðar finnst mér svarið einnig bera vott um einhverskonar misskilning þar sem engin (hér amk.) hefur haldið því fram að bolt shroud-ið læsi/hlaði pinnann. Enda getur hver sem er séð það að það hefur engin áhrif að setja boltann í og hlaða án bolt shroud-sins. Spurning hvort þú póstir hér inn spurningunni sem leiddi af sér þetta svar?
Hi Johann,
We have not had a problem with Tikka T3 bolt shrouds and not have to worry about this. Because, bolt shroud does not lock the firing pin. Bolt handle lock the firing pin in place. Bolt shroud is only dust cover.
Þakka ykkur fyrir
Jói byssusmiður í Ellingsen
Mér finnst þetta "svar" í rauninni vera að svara einhverju allt öðru en því hvort plastið í bolt shroud-inu sé gallað/of veikt eða hönnunin slæm :|

Niðurstaða
Þetta var ömurleg upplifun og eins og ég hef sagt hér að ofan þá langar mig ekki að fá þetta stykki í andlitið aftur þannig að ég kýs, og ráðlegg mönnum, að skipta þessum hlut út áður en þetta gerist aftur ;) Annars er ég að öllu öðru leiti mjög sáttur við Tikkuna og mæli með henni við hvern þann sem spyr mig álits :mrgreen:
Mbk.
Þórarinn Ólason
Konni Gylfa
Posts: 69
Joined: 24 Oct 2012 19:01

Re: *ALLT SELT* Tikka Bolt Shroud til sölu

Unread post by Konni Gylfa »

Sælir felagar. Er einhver hérna sem hefur pantað áður að utan og þekkir ferliðtilbúinn að panta svona á tikkuna mína fyrir mig? Er með rustfree varmint tikku.
Konráð Gylfason konni.mve(hjá)gmail.com
8494968
Gísli Snæ
Posts: 475
Joined: 12 Apr 2012 21:37

Re: *ALLT SELT* Tikka Bolt Shroud til sölu

Unread post by Gísli Snæ »

Sendu bara einkaskilaboð á Tóta. Einnig getur þú sent mér póst á gislisnae@islandia.is. Það er hægt að panta þetta frá www.tikkaperformance.com - en það er frekar dýrt að panta bara 1 stk shroud. Sendingarkostnaðurinn verður hlutfallslega svo hár. Ef þú pantar eitthvað fleira þá er þetta sniðugt.

https://tikkaperformance.com/index.php? ... =156_59_67
Kveðja,
Gísli Snæbjörnsson
gislisnae@islandia.is
Post Reply