joivill wrote:... þar segir að eingin vandræði hafi komið upp varðandi þetta, og er ég sammála þeim með það ...
Sæll Jóhann
Áhugavert svar þetta

en svo sem ekki við öðru að búast af framleiðanda. Framleiðendur neita yfirleitt göllum þangað til þeir komast ekki upp með það lengur. Hægt er að finna mörg fræg atvik t.d. hjá bílaframleiðendum. En ég ætla ekki að rífast um það hér.
Netið segir manni í raun mun meira en svona svar frá Sako, þar sem mjög margir aðrir en ég hafa lent í þessu og tjáð óánægju sína með þau svör sem framleiðendur og umboðsaðilar veita. Veit ég m.a. um fjóra hér á landi (þekkjandi ekki mjög marga Tikka eigendur) sem fundið hafa sprungur eða brot í sínu bolt shroud-i eftir að ég vakti athygli á þessu.
Fyrir utan þessa yfirlýsingu um að ekkert vandamál sé til staðar finnst mér svarið einnig bera vott um einhverskonar misskilning þar sem engin (hér amk.) hefur haldið því fram að bolt shroud-ið læsi/hlaði pinnann. Enda getur hver sem er séð það að það hefur engin áhrif að setja boltann í og hlaða án bolt shroud-sins. Spurning hvort þú póstir hér inn spurningunni sem leiddi af sér þetta svar?
Hi Johann,
We have not had a problem with Tikka T3 bolt shrouds and not have to worry about this. Because, bolt shroud does not lock the firing pin. Bolt handle lock the firing pin in place. Bolt shroud is only dust cover.
Þakka ykkur fyrir
Jói byssusmiður í Ellingsen
Mér finnst þetta "svar" í rauninni vera að svara einhverju allt öðru en því hvort plastið í bolt shroud-inu sé gallað/of veikt eða hönnunin slæm
Niðurstaða
Þetta var ömurleg upplifun og eins og ég hef sagt hér að ofan þá langar mig ekki að fá þetta stykki í andlitið aftur þannig að ég kýs, og ráðlegg mönnum, að skipta þessum hlut út áður en þetta gerist aftur

Annars er ég að öllu öðru leiti mjög sáttur við Tikkuna og mæli með henni við hvern þann sem spyr mig álits

Mbk.
Þórarinn Ólason