Mig langar af einhverjum ástæðum í u/y til þess að nota í rjúpnaveiðar, fyrir á ég Browning Phoenix sem ég er mjög sáttur við en mig langar svolítið að prófa að nota tvíhleypu við rjúpnaveiðar.
Ég er með tvær spurningar.
1) Í hvaða tegundum gerir maður bestu kaupin þ.e verð vs gæði.
2) Hefur tvíhleypa eitthvað forskot fram yfir hálfsjálfvirka við rjúpnaveiðar.
Raunverulegur tilgangur þessa pósts er að fá álit fróðari/reyndari manna og að sannfæra sjálfan mig um að ég þurfi nauðsynlega að eignast aðra byssu því mig virðist vanta endalaust af þeim
