Pet-project 6,5 x 47 Lapua
- Stebbi Sniper
- Posts: 492
- Joined: 09 Jun 2012 00:58
- Location: Reykjavík
- Contact:
Pet-project 6,5 x 47 Lapua
Ég verð að viðurkenna að ég er mjög hugfanginn af því sem kemur frá Lapua. Þess vegna fór ég af stað að setja saman riffil sem ég ætla að reyna að hafa svona "all in one" riffil. 6.5 x 47 Lapua varð fyrir valinu eftir mikla lesningu á netinu og pælingar.
Þetta ætti alveg að ganga ágætlega upp hér á landi þar sem maður þarf ekki stærra cal en 6,5 til þess að fella hreindýr á færum langt út fyrir það sem 98 % skotana hér á landi fer fram á og þetta cal er ágætt á allt annað sem hægt er að veiða hér ásamt því að það er mjög gott úrval af 6,5 mm kúlum.
Auðvitað eru til hentugri cal og hylki í hverja veiði fyrir sig, svo eru líka til mismunandi hylki sem henta betur en önnur í hinar ýmsu tegundir af pappaskytteríi, en ég trúi því að þetta hylki sé hinn gullni meðalvegur í þessu öllu og að með þessu geti ég gert allt sem ég þarf að geta í veiðum með riffli.
Uppruna hylkisins má rekja annars vegar til Lapua eins og nafnið gefur til kynna, en hins vegar til Svissneska riffilframleiðandans Grünig & Elmiger. En þetta hylki er hannað af þessum tveimur fyrirtækjum með það í huga að búa til 6,5 mm hylki sem sameinar góða nákvæmni, góða hlaupendingu og lítið bakslag fyrir 300 metra mark skotfimi.
Frábæra grein um þetta hylki má lesa á 6mmbr.com: 6.5 x 47 Lapua á 6mmbr.com
Lapua er þekkt fyrir framúrskarandi framleiðslu á hylkjum og allir virðast vera einróma í því að lofa þeirra framleiðslu hvar sem maður les og grúskar á netinu. Svo fyrir mig var þetta algjör "nóbrainer".
Áhugi minn á 300 metra prone (60 skot liggjandi) markskytteríi fer stigvaxandi í beinu framhaldi af því að ég æfi nokkuð mikið og keppi í 50 metra prone (60 skot liggjandi). Náungi að nafni Henri Hakkinen skaut 600 stig af 600 mögulegum í 300 metra keppni með verksmiðjuskotum frá Lapua í þessu caliberi, sem segir mikið um gæði framleiðslunar frá Lapua og gæði þessa hylkis.
Þegar ég var búinn að velja mér hylki þá var næst að velja íhluti, hér er listinn yfir það sem ég pantaði:
Stiller Predator eins skota lás
Krieger 1/8.5 twist hlaup
GRS hunter skepti
Jewel HV gikkur
20 MOA Picatinny rail
Rail undir skepti fyrir handstopp
Þegar þetta er skrifað er Finni búinn að skrúfa hlaupið framan á lásinn ef Guð lofar, svo þetta verða vonandi gleðileg jól hjá mér...
Ég ætla að byrja á því að skjóta inn hlaupið með 39 grs af N-140 á bak við 100 grs Lapua Scenar kúlu, svo setur maður kannski hálft grain í viðbót síðar samkvæmt uppskrift frá Finna sem virðist koma vel út hjá mög mörgum. Digital vigtin mín sínir alltaf 0,2 grain undir því sem Hornady skálarvogin hans Skúla Ben sýnir svo ég hef ákveðið að miða ferkar við það sem Hornady vogin sínir enda afburðar nákvæm eins og eigandinn... hleðslu info:
100 grs Scenar
39 grs VV N-140
COL: 71 mm
Primer: CCI-BR4
Hylki: Lapua
Set hérna inn report þegar ég er búinn að skjóta græjuna inn og fer að testa grúppur á 100, 200 og 300 metrum.

Stefán Eggert Jónsson
Skotfélag Kópvogs
Skotfélag Kópvogs
Re: Pet-project 6,5 x 47 Lapua
Skemmtileg lesning og takk fyrir að deila þessu, virkilega spennandi cal og þessi samsetning hjá þér er hrikalega flott
hvernig sjónauka á svo að nota ofan á græjuna?

Kv. Þórður Sigurðsson Spíri. Borgarnesi
- maggragg
- Skytta
- Posts: 1287
- Joined: 02 Jul 2010 07:59
- Fullt nafn: Magnús Ragnarsson
- Location: Vík
- Contact:
Re: Pet-project 6,5 x 47 Lapua
Virkilega flott lesning, gaman að sjá svona glæsilega græju verða til og hvernig þú hefur stúderað þetta í botn. Þetta á ekki eftir að svíkja þig, Ég vona að við verðum komnir með flotta 300 metra braut með vorinu svo við getum boðið þér að kíkja, og kannski kenna okkur nokkur trix 

Magnús Ragnarsson
Vík
868 0546
"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
Vík
868 0546
"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
Re: Pet-project 6,5 x 47 Lapua
Snilld. Þræðirnir gerast ekki skemmtilegri en þessi. Endilega að halda áfram að setja inn eftir því sem verkið heldur áfram.
Hvernig gler á síðan að setja á riffilinn?
Hvernig gler á síðan að setja á riffilinn?
Re: Pet-project 6,5 x 47 Lapua
6,5x 47 Lapua
Riffill. Sako /Hart
Púður: N-550
Hleðsla: 41,4 grs
Kúla:Nosler Bt 120 grs
Primer: Rem 7 ½
OAL: 69,2 mm.
Mældur hraði 8 skota.
Meðaltal: 3095 ft.
Hleðsla minnkuð í 40,4 grs.
N-140
Kúla: Lapua scenar 123 grs.
Hleðsla 37,0 grs.
Oal: 69,2 mm
Að síðustu er ég farinn að nota RE-15 púðrið við þessa kúlu. Mér finnst hlaupið sótast meira með 550 púðrinu.
Nota 39,0 grs af RE 15.
Til hamingju með þessa græju. Hún getur ekki annað en virkað.

Kv.
Gylfi Sigurðsson
Húsavík
Gylfi Sigurðsson
Húsavík
-
- Posts: 69
- Joined: 24 Oct 2012 19:01
Re: Pet-project 6,5 x 47 Lapua
virkilega flott og gaman að fá að fylgjast með.
Konráð Gylfason konni.mve(hjá)gmail.com
8494968
8494968
- Morri
- Posts: 116
- Joined: 03 Oct 2012 22:07
- Location: Efri-Hólum,Núpasveit við Öxarfjörð. Grenjavinnslusvæði: Austursvæði Melrakkasléttu
Re: Pet-project 6,5 x 47 Lapua
Kvöldið
Þetta er spennandi cal. Verður gaman að sjá hvernig jólin verða hjá þér

Ómar Gunnarsson
morri(at)kopasker.is
Hvert skott er sigur
morri(at)kopasker.is
Hvert skott er sigur
- Stebbi Sniper
- Posts: 492
- Joined: 09 Jun 2012 00:58
- Location: Reykjavík
- Contact:
Re: Pet-project 6,5 x 47 Lapua
Glerið verður Zeiss 6 - 24 x 56... Svo á ég Centra sigti sem hugmyndin er að reyna að mixa à railið næsta sumar fyrir 300 metrana! Budget-ið er bara löngu búið núna...
Gylfi, ég hef ekki àhuga à því að nota 500 púðrið ef ég fæ hann til að skjóta vel með 140. Ég sækist ekki endilega eftir þessum auka fetum à kostnað sóts... svo ég ætla personulega að reyna að forðast það til að byrja með.
Kem með meira info þegar þetta er komið eitthvað à stað hjà mér...

Gylfi, ég hef ekki àhuga à því að nota 500 púðrið ef ég fæ hann til að skjóta vel með 140. Ég sækist ekki endilega eftir þessum auka fetum à kostnað sóts... svo ég ætla personulega að reyna að forðast það til að byrja með.
Kem með meira info þegar þetta er komið eitthvað à stað hjà mér...
Stefán Eggert Jónsson
Skotfélag Kópvogs
Skotfélag Kópvogs
Re: Pet-project 6,5 x 47 Lapua
Getur ekki annað en orðð góður riffill
Nr. 1 Finni með puttana í smíðinni
Er með Stiller Predator lás
Jewell gikk
Krieger hlaup í 1:8,5
GRS longrange skepti
Nightforce 12-42x56
Hef verið að nota N550 mest en líka prufað N140
Kúlur 100gn Scenar og 120 Nosler eða 123 A-Max
BR-4 pr

Kveðja
Kristján R. Arnarson
Húsavík
Kristján R. Arnarson
Húsavík
Re: Pet-project 6,5 x 47 Lapua
Þetta er gríðarlega spennandi 
Er ekki rétt munað að þetta hylki sé svipað og 308, sami botn en einhvað styttra?

E.Har
Einar Kristján Haraldsson
860 99 55
Menn eiga að hafa manndóm til að setja nafnið sitt við það sem þeir segja
Einar Kristján Haraldsson
860 99 55
Menn eiga að hafa manndóm til að setja nafnið sitt við það sem þeir segja

Re: Pet-project 6,5 x 47 Lapua
Sæll Stefán til hamingju með riffilinn 6,5x47 er að gera það gott í 300 m uit
það verður gaman að sjá ef þú mætir með hann í þessi 300 m sti mót sem eru
á dagatalinu
kveðja

Hjörleifur Hilmarsson
- Stebbi Sniper
- Posts: 492
- Joined: 09 Jun 2012 00:58
- Location: Reykjavík
- Contact:
Re: Pet-project 6,5 x 47 Lapua
Sæll Hjölli!
Takk fyrir það, ég stefni á að nota hann í 300 metra free riffil næsta sumar, hver veit kannski viðra ég hann á áramótinu upp í álfsnesi líka. Ef ég hef tíma til þess að komast í þessi mót. Það var nú alveg kominn tími á það að uppfæra úr verksmiðju riffli yfir í custom.
Sæll Einar
Það er rétt þetta er sami botn og .308 með small primer. Er ekki .308 Palma með small primer líka?
Ég er búinn að stara lengi á myndina af rifflinum þínum Kristján... nú get ég hætt því og byrjað að stara bara inn í byssuskápinn minn... sem er mjög gott
Samkvæmt greininni á 6mmbr þá var mjög auðvelt að finna góðar hleðslur í þetta cal með haug af kúlum og mismunandi púðri. Ég ætla að prófa 100 og 108 grs Scenar kúlur ásamt 130 VLD Hunting kúluni frá Berger (ef ég get eitthverstaðar nálgast hana).
Mér finnst Nosler (er ekki A-Max mjög svipuð) bara vera nothæf í vargveiðar varla í veiðar þar sem á að nýta bráðina og þá alls ekki í hreindýraveiðar nema skjóta þá í haus eða háls.
Gylfi, varðandi RE-15 púðrið hvar er það í samanburði við VV 100 og 500 línuna? Veistu hvar það lendir í brunahraða? Það virðast vera mjög margir ánægðir með RE-15 í 6,5 x 47.

Þú gætir athugað hvort skyttan.is panti ekki bara fyrir þig 130 VLD þeir eru með 140 VLD sem ég prófaði á sýnum tíma nánast gat í gat á pappa en vonlaus á gæs. 120 Noslerinn á það til að opnast ekki í rebba og fara beint í gegn og rebbi hleypur stundum full langt áður en hann fellur en 100 graina Noslerinn virðist ekki klikka þar en ég nota 120 Noslerinn í gæs en félagi minn notar nosler á hreindýr og það eru litlar kjötskemdir ég hef ekki hreindýrareynslu enn.
Siggi Veiðimeistari vill að við notum 100 graina nosler þaðr séu í raun minstu kjötskemdinar.
En bara vegna nýungagirninar og vegna þess að þær eu aðeins ódýrari langar mig að prófa A max
Og já bara svo það sé á hreinu þá er ég að gefa þessa reynslu út frá 6,5x55

Þorsteinn Hafþórsson
Þorsteinn Hafþórsson
- Stebbi Sniper
- Posts: 492
- Joined: 09 Jun 2012 00:58
- Location: Reykjavík
- Contact:
Re: Pet-project 6,5 x 47 Lapua
Nosler kúlan á að vera þannig hönnuð að hún opnist mjög hratt, en það er örugglega allur gangur á því. Gæti trúað því að ef hún hittir ekki vel í tófu eða gæs og önnur smá dýr að hún fari mjög auðveldlega í gegn, en þá myndi ég halda að aðrar veiðikúlur á svipuðum hraða færu líka í gegn. 100 grs Nosler kúlan er örugglega bara það mikið hraðari að hún opnast ferkar við minni fyrirstöðu.
Svo er það alltaf spurning hvernig þetta virkar allt þegar út í veiðar er komið og þar getur náttúrulega Siggi svarað betur en flestir hér, þar sem hann er með mjög góða reynslu af þessu öllu.
Fyrir hreindýraveiðar myndi ég mæla með meiri æfingu og haus eða háls skoti, frekar en að bog skjóta með Nosler. Þetta er samt bara byggt á minni tilfinningu frekar en vísindalegu mati á því hvað kemur best út af þessu.
Svo er það alltaf spurning hvernig þetta virkar allt þegar út í veiðar er komið og þar getur náttúrulega Siggi svarað betur en flestir hér, þar sem hann er með mjög góða reynslu af þessu öllu.
Fyrir hreindýraveiðar myndi ég mæla með meiri æfingu og haus eða háls skoti, frekar en að bog skjóta með Nosler. Þetta er samt bara byggt á minni tilfinningu frekar en vísindalegu mati á því hvað kemur best út af þessu.
Stefán Eggert Jónsson
Skotfélag Kópvogs
Skotfélag Kópvogs
Re: Pet-project 6,5 x 47 Lapua
Mæli með Bógskoti minni hæta á mikklu vésini!
En hvað em það hef figtað með þessar kúlur og finnst v-maxin 95 gr ekkert satnda hinum að baki nema í verði, hann er ódýrari
En hvað em það hef figtað með þessar kúlur og finnst v-maxin 95 gr ekkert satnda hinum að baki nema í verði, hann er ódýrari

E.Har
Einar Kristján Haraldsson
860 99 55
Menn eiga að hafa manndóm til að setja nafnið sitt við það sem þeir segja
Einar Kristján Haraldsson
860 99 55
Menn eiga að hafa manndóm til að setja nafnið sitt við það sem þeir segja

Re: Pet-project 6,5 x 47 Lapua
já má vera Stefán ég er að skjóta 120 mjög hægt til að hámarka nákvæmnina og ég tek gæsina alltaf á hlið rétt framanvið og aðeins ofar en vængbarðið er og undantekningarlaust fer kúlan inn þar og upp um bakið og engar skemdir á bringu innmat né lærum.
Ég hef ekki neina reynslu af hreindýrunum en hef heyrt marga tala um að þeir tími ekki að skjóta í haus vegna þess að krúnan sé svo falleg.
En hvort það er aldurinn og sé að meirna eða bara viðkvæmni í mér þá finnst mér tímin sem það tekur dýrið að falla við lungvaskot alveg hroðalega langur stundum svo ef ég fæ hreyndýr yrði hausskot fyrir valinu ef ég fengi leyfi til þess og aðstæður leyfðu

- Veiðimeistarinn
- Posts: 1917
- Joined: 17 Jul 2010 09:47
- Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
- Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal
Re: Pet-project 6,5 x 47 Lapua
Þær eru alveg á pari 100 gr. Nosler ballestic tip og 95 gr. V-Max, koma mjög svipað út, þó virðist V-Maxinn koma ívið betur út í nákvæmni hjá mér.
Það er allt í lagi að skjóta þessum kúlum báðum á haus á hreindýri eins og reyndar öllum kúlum sem hafa þessa sömu eiginleika að leysast nánast upp í frumeindir sínar þegar þær hitta fyrirstöðu.
Sé kúlan varmint og fari fram ú hlaupi á yfir 3000 fetum tekur hún hausin nánast af hreinkúm en steindrepur tarfana og er þá nánast sama hvar hún hittir á hausinn.
Það skapar ekkert vésen Einar og málið er steindautt og dýrið líka. Vésenið orsakast af því þegar soft point kúlu á undir 3000 fetum og kannski vel undir þeim hraða er skotið á haus, þá verur kúlan að hitta heilann til að drepa dýrið, annars fer það nánast jafn gott.
Kúla sem tætist líkt og ball.tip og V-Max þarf hins vegar ekki að hitt beint á heilann til að drepa, það er nánast sama hvar hún kemur á hausinn hún tætist það mikið að eitthvað af brotunum lendir upp í heila auk þess sem hún mölbrýtur hauskúpuna og með brotna og aflagaða hauskúpu eru dýrin ekki að fara neitt.
Hins vegar ef menn tíma ekki að skjóta svona kúlu á hausinn af því þeim finnst hann svo fallegur og ætla að hirða krúnuna er best að setja kúluna undir aftanvert eyrað, það virkar alveg jafn vel og hausinn losnar nánast frá bolnm vegna þess að banakringlan hverfur við svoleiðis skot.
Vilji menn hins vegar skjóta þessum kúlum á bóg, verður að stja þær vel fyrir aftan framfótinn ofan við mitt dýr til að lágmarka kjötskemmdir þar gera þær bara smá gat og fara oft ekki einu sinni í gegn en gera sitt gagn þarna inni í myrkrinu.

- Attachments
Last edited by Veiðimeistarinn on 12 Dec 2012 16:25, edited 1 time in total.
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Re: Pet-project 6,5 x 47 Lapua
Heyrðu Siggi ég heyrði kenningu um að lungnaskotið væri best út frá blóðgun að því blæddi best út ef það væri skotið í lugað. Passar það ?
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
Þorsteinn Hafþórsson
Re: Pet-project 6,5 x 47 Lapua
Ótrúlega er tíminn fljótur að líða. Rúm 4 ár síðan að þessi mynd var tekin af mér.
- Veiðimeistarinn
- Posts: 1917
- Joined: 17 Jul 2010 09:47
- Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
- Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal
Re: Pet-project 6,5 x 47 Lapua
Já Þorsteinn það er rétt útfrá bestu blóðgun.
Með því að gera gat á lungun heldur hjartað áfram að dæla blóði sem fer allt að lokum út um gatið á lungunum, þannig blóðtæmist skrokkurinn betur.
Ef skotið er í hjartað hættir það strax að dæla og blóðið lekur inn í brjóstholið og þannig tæmist kerfið ekki eins vel.
Sé dýrið skotið í brjósthol er óðarfi að blóðga það eða það hefur ekkert að segja, við lungnaskotið fer allt blóðið út í brjóstholið en við hjartaskotfer mest allt blóðið út í brjósthol en ekki þíðir neitt að blóðga vegna þess að hjartað er hvort sem er hætt að dæla.
Aldrei skyldi þó hálsskera dýr, það er í fyrsta lagi ljótt til dæmis á myndum, í öðru lagi er það óhreinlegt vegna þess að það lekur lengi blóð úr þeim skurði og veldur oft óþarfa óþrifnaði á umhverfinu þegar skrokkurinn er fluttur til byggða, það er mun hreinlegra að flytja dýrið til byggá með hausinn á því.
Blóðgun skal alltaf framkvæma þannig að stinga hnífnum um það bil 7-10 cm inn í átt að hjartanu rétt fyrir ofan bringukollsendann neðst á hálsinum, bakka hnífsins er snúið að framenda bringukollsins, egginni síðan snúið í hálfhring út úr sárinu um leið og hnífnum er kippt út aftur.
Sé hins vegar skotið í hausinn verður að blóðga dýrið innan 90 sekúndna cirka, það er nóta bene líka gert á bringukollsenda.