Gisminn wrote:Ég keypti Lyman settið og það er fínt sérstaklega skálavogin og pressan. Allt hitt er fínt fyrir almennan veiðimann sem hleður kannski 5-600 skot á ári það eru örugglega til betri græjur sem líta fyrir manni í hleðslunum en ég hef pínu gaman að dunda við þetta. Er með púðurskamtarann aðeins undir þyngd og trikkla svo i rétta þyngd en ég er með redding dia og hornardy micro kúlusetjara.
Sæll Þorsteinn
Takk fyrir upplýsingarnar. Lyman er það sett sem er í öðru sæti hjá mér á eftir Redding. Ef það reynist eitthvað erfitt að flytja svona inn þá mun ég sjá hvort ég get reddað þessum aukahlutum sem uppá vantar í Redding pakkan hjá Sportbúðinni. Ef það reynist svo líka erfitt þá held ég að Lyman verði fyrir valinu, ef engin getur bent mér á eitthvað betra fyrir ekki mikið meiri pening
Veiðimeistarinn wrote:Elskurnar mínar, það fást svona hleðslusett í Ellingsen á fínu verð, ég held að það sé ekki ómaksins virði að vera að flytja þetta sjálfur inn vegna þessara tæknilegu hindrana víða um heim, þó heita eigi að verslunarfrelsi gildi í veröldinni

Sæll Sigurður
Takk fyrir ábendinguna. Ég var búinn að skoða settið í Ellingsen og það heillaði mig ekki. Sérstaklega tek ég fram þar digital vog en umhverfið sem ég mun hlaða í takmarkast af miklum þrýstingsbreytingum þannig að ég vil fá skálavog í pakkanum ef hægt er. Það reyndist ekki hægt í Ellingsen en auðvitað væri hægt að skoða það að skipta við einhvern sem hefði áhuga á því, en ég nenni ekki svoleiðis æfingum ef ég kemst hjá því. En ef einhvert telur settið hjá Ellingsen hafa eitthvað fram yfir settin hjá Sportbúðinni og Hlað þá mundi ég glaður hlusta á það.
gni wrote:Ég keypti Redding hleðslupakka á útsölunni hjá Sportbúðinni í fyrra. Ég veit ekki hvort útsalan er enn í gangi en það væri athugandi að fá pakka hjá þeim.
Sæll gni
Ég var einmitt búinn að heyra í þeim og eins og Björninn bendir á þá bjóða þeir ekki neinn afslátt af hleðsluvörum.
E.Har wrote:Það er vésin að fá hleðsluvörur sendar frá USA.
http://www.veidimadurinn.is/Default.asp ... 42&vID=661
Redding Boss propakk kostar 59 þús á Íslandi ! Og 500$ í póstverslun fyrir utan tolla vsk og vésin.
Það er bjargföst skoðun mín að við eigum að versla sem mest hér heima.
Eigum 3-4 flottar verslanir og þurfum að halda þeim gangandi okkar vegna

Ef ég rétt horfi yfir þetta kitt þá er það fínt. Vilt bæta við þig primertöng, bkkum fyrir hylki og svp auðvitað dæjum og shellholderum. Kannski digital vigt
Það sem ég legg áherslu á er að vera með góða pressu sem auðvelt er að forma hylki með fyrir veiðibyssu. SEinna má svo altaf fá sér einhvað pempiulegra til kúlusetninga. Góðan skamttara og vandaða vigt. Fljótt á litið þá er þetta bara fínt kitt

Ef einhverjar spurningar vakna spyrðu

Sæll Einar
Takk fyrir greinargott svar. Vil samt byrja á því að leiðrétta eitt. Pakkinn sem ég pósta og pakkinn sem Sportbúðinn bíður upp á (linkurinn sem þú setur inn) eru ekki sambærilegir og því ekki hægt að bera saman 59 þús. og $500

Þetta er Boss Pro Pak annars vegar og Boss Pro Pak Deluxe hins vegar
Tek undir það að versla eigi "í heimabyggð" ef hægt er en ég er bara að skoða alla kosti og þar sem USA er á dagskránni þá held ég öllum möguleikum opnum

Veist þú í hverju þetta vesen við innflutning á hleðsluvörum felst? Þ.e.a.s. hvað er helsta vesenið? Einhver sérstök leyfi önnur en skitinn stimpill hjá Jónasi eða eitthvað slíkt?
Enn og aftur, allar tillögur vel þegnar en þó helst í formi ráðlegginga um kosti og galla. T.d. "Af gefinni reynslu, tel ég X vera betra en X vegna ... "

Mbk.
Þórarinn Ólason