Innflutningur á hleðslugræjum (Stefán? Pálmi? Aðrir?)

Allt tengt endurhleðslu. Kúlur, hylki, púður og ýmis tæki og tól
Forum rules
Allar upplýsingar um hleðslutölur eru án ábyrgðar og hver sem hyggst nýta sér þær skal fylgja öryggisreglum um hleðsu skotvopna og ávalt byrja á lágmarkshleðslu og vinna sig upp.
User avatar
TotiOla
Posts: 406
Joined: 07 Mar 2012 21:21
Location: 210 Garðabæ

Innflutningur á hleðslugræjum (Stefán? Pálmi? Aðrir?)

Unread post by TotiOla »

Sælir græjukallar, sem og konur, ef þær leynast hér.

Nú langar mig að forvitnast með það hvort einhver hérna getur aðstoðað mig og ráðlagt í tengslum við innflutning á hleðslugræjum? Mig grunar að Stefán Eggert Jónsson sé helvíti sleipur í þessum efnum en allar ráðleggingar og aðstoð er vel þegin.

Nú er svo komið að hleðsla á eigin skotum er farin að heilla mig mikið og næsta skref er að versla búnaðinn. Heitastur er ég fyrir fullu setti frá Redding en hef þó ekki þekkingu/reynslu til þess að dæma um hvað er gott. Áhuga á þessu sérstaka setti hef einungis þróað með mér út frá hlutdrægum umsögnum og söluræðum :mrgreen:

Helsta spurningin er hver kostnaðurinn við innflutning er vs. verð hér út í búð, sem og úrval. Svo og hvort teljandi vandræði séu fólgin í því að taka þetta með sér heim frá USA vs. að fá þetta sent. Þessi pakki hér að neðan heillar mjög mikið en mér reiknast til að þetta sé einhver 95 þús. kall, heim komið. Telji þið það fjarri lagi?

Big Boss Pro Pak Deluxe

Tillögur að einhverju sem menn telja betra en þetta eru einnig vel þegnar (rökstuðningur má þá endilega fylgja).
Last edited by TotiOla on 09 Jan 2013 00:21, edited 1 time in total.
Mbk.
Þórarinn Ólason
User avatar
atlimann
Posts: 37
Joined: 21 Jun 2012 18:23
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Re: Innflutningur á hleðslugræjum (Stefán?)

Unread post by atlimann »

Nú veit ég ekkert um þetta en ertu búin að kynna þér pakkan hjá Hlað, þeir eru með Lyman og stóri pakkinn hjá þeim kostar 89.000kr

Ver einmitt að skoða þetta og mér sýnist vera flest í honum nema Dæjar
Atli Már Erlingsson
Verkfæri
Benelli Super Black Eagle II Lefty
Remington 870 SPS Camo
Sauer 202 Classic cal. 6.5x55 Lefty m/ Zeiss Victory Diavari 3-12 x 56 T
User avatar
TotiOla
Posts: 406
Joined: 07 Mar 2012 21:21
Location: 210 Garðabæ

Re: Innflutningur á hleðslugræjum (Stefán?)

Unread post by TotiOla »

Sælir :)

Já, ég var búinn að skoða þetta. Ágætis pakki. Vantar bara dæjana (sem ég er búinn að kaupa - Redding) og töngina. Ég hef hins vegar ekki heyrt neitt sérstaka hluti um Lyman og bara heyrt góða hluti um Redding, fyrir utan verðið :P

Væri endilega til í að heyra sögur af því ef einhver hérna hefur reynslu af samanburði á Lyman og öðrum tegundum. Þess má geta að ég er kannski ekki alveg á leiðinni í einhverjar BR-græjur en ég vil þó hafa meiri möguleika á nákvæmni en bara "alveg nóg í veiði" ;)
Mbk.
Þórarinn Ólason
User avatar
Gisminn
Posts: 1349
Joined: 29 Aug 2011 21:47
Location: Blönduós

Re: Innflutningur á hleðslugræjum (Stefán? Pálmi? Aðrir?)

Unread post by Gisminn »

Ég keypti Lyman settið og það er fínt sérstaklega skálavogin og pressan. Allt hitt er fínt fyrir almennan veiðimann sem hleður kannski 5-600 skot á ári það eru örugglega til betri græjur sem líta fyrir manni í hleðslunum en ég hef pínu gaman að dunda við þetta. Er með púðurskamtarann aðeins undir þyngd og trikkla svo i rétta þyngd en ég er með redding dia og hornardy micro kúlusetjara.
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Innflutningur á hleðslugræjum (Stefán? Pálmi? Aðrir?)

Unread post by Veiðimeistarinn »

Elskurnar mínar, það fást svona hleðslusett í Ellingsen á fínu verð, ég held að það sé ekki ómaksins virði að vera að flytja þetta sjálfur inn vegna þessara tæknilegu hindrana víða um heim, þó heita eigi að verslunarfrelsi gildi í veröldinni :!:
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
gni
Posts: 10
Joined: 24 Feb 2012 12:42

Re: Innflutningur á hleðslugræjum (Stefán? Pálmi? Aðrir?)

Unread post by gni »

Ég keypti Redding hleðslupakka á útsölunni hjá Sportbúðinni í fyrra. Ég veit ekki hvort útsalan er enn í gangi en það væri athugandi að fá pakka hjá þeim.
Kveðja,
Gunnar Júlíusson
Björninn
Posts: 67
Joined: 04 Jul 2012 16:31
Fullt nafn: Björn Gíslason

Re: Innflutningur á hleðslugræjum (Stefán? Pálmi? Aðrir?)

Unread post by Björninn »

Enginn afsláttur af hleðsluvörum á rýmingarsölunni hjá þeim núna.
Kveðja,
Björn Gíslason
User avatar
E.Har
Posts: 624
Joined: 27 May 2012 23:26
Location: Reykjavík
Contact:

Re: Innflutningur á hleðslugræjum (Stefán? Pálmi? Aðrir?)

Unread post by E.Har »

Það er vésin að fá hleðsluvörur sendar frá USA.

http://www.veidimadurinn.is/Default.asp ... 42&vID=661

Redding Boss propakk kostar 59 þús á Íslandi ! Og 500$ í póstverslun fyrir utan tolla vsk og vésin.
Það er bjargföst skoðun mín að við eigum að versla sem mest hér heima. :mrgreen:

Eigum 3-4 flottar verslanir og þurfum að halda þeim gangandi okkar vegna :P

Ef ég rétt horfi yfir þetta kitt þá er það fínt.
Vilt bæta við þig primertöng, bkkum fyrir hylki og svp auðvitað dæjum og shellholderum.
Kannski digital vigt :-)

Það sem ég legg áherslu á er að vera með góða pressu sem auðvelt er að forma hylki með fyrir veiðibyssu. SEinna má svo altaf fá sér einhvað pempiulegra til kúlusetninga.
Góðan skamttara og vandaða vigt.
Fljótt á litið þá er þetta bara fínt kitt :P
Ef einhverjar spurningar vakna spyrðu :-)
E.Har

Einar Kristján Haraldsson
860 99 55
Menn eiga að hafa manndóm til að setja nafnið sitt við það sem þeir segja ;-)
User avatar
TotiOla
Posts: 406
Joined: 07 Mar 2012 21:21
Location: 210 Garðabæ

Re: Innflutningur á hleðslugræjum (Stefán? Pálmi? Aðrir?)

Unread post by TotiOla »

Gisminn wrote:Ég keypti Lyman settið og það er fínt sérstaklega skálavogin og pressan. Allt hitt er fínt fyrir almennan veiðimann sem hleður kannski 5-600 skot á ári það eru örugglega til betri græjur sem líta fyrir manni í hleðslunum en ég hef pínu gaman að dunda við þetta. Er með púðurskamtarann aðeins undir þyngd og trikkla svo i rétta þyngd en ég er með redding dia og hornardy micro kúlusetjara.
Sæll Þorsteinn
Takk fyrir upplýsingarnar. Lyman er það sett sem er í öðru sæti hjá mér á eftir Redding. Ef það reynist eitthvað erfitt að flytja svona inn þá mun ég sjá hvort ég get reddað þessum aukahlutum sem uppá vantar í Redding pakkan hjá Sportbúðinni. Ef það reynist svo líka erfitt þá held ég að Lyman verði fyrir valinu, ef engin getur bent mér á eitthvað betra fyrir ekki mikið meiri pening :)
Veiðimeistarinn wrote:Elskurnar mínar, það fást svona hleðslusett í Ellingsen á fínu verð, ég held að það sé ekki ómaksins virði að vera að flytja þetta sjálfur inn vegna þessara tæknilegu hindrana víða um heim, þó heita eigi að verslunarfrelsi gildi í veröldinni :!:
Sæll Sigurður
Takk fyrir ábendinguna. Ég var búinn að skoða settið í Ellingsen og það heillaði mig ekki. Sérstaklega tek ég fram þar digital vog en umhverfið sem ég mun hlaða í takmarkast af miklum þrýstingsbreytingum þannig að ég vil fá skálavog í pakkanum ef hægt er. Það reyndist ekki hægt í Ellingsen en auðvitað væri hægt að skoða það að skipta við einhvern sem hefði áhuga á því, en ég nenni ekki svoleiðis æfingum ef ég kemst hjá því. En ef einhvert telur settið hjá Ellingsen hafa eitthvað fram yfir settin hjá Sportbúðinni og Hlað þá mundi ég glaður hlusta á það.
gni wrote:Ég keypti Redding hleðslupakka á útsölunni hjá Sportbúðinni í fyrra. Ég veit ekki hvort útsalan er enn í gangi en það væri athugandi að fá pakka hjá þeim.
Sæll gni
Ég var einmitt búinn að heyra í þeim og eins og Björninn bendir á þá bjóða þeir ekki neinn afslátt af hleðsluvörum.
E.Har wrote:Það er vésin að fá hleðsluvörur sendar frá USA.
http://www.veidimadurinn.is/Default.asp ... 42&vID=661
Redding Boss propakk kostar 59 þús á Íslandi ! Og 500$ í póstverslun fyrir utan tolla vsk og vésin.
Það er bjargföst skoðun mín að við eigum að versla sem mest hér heima. :mrgreen:

Eigum 3-4 flottar verslanir og þurfum að halda þeim gangandi okkar vegna :P Ef ég rétt horfi yfir þetta kitt þá er það fínt. Vilt bæta við þig primertöng, bkkum fyrir hylki og svp auðvitað dæjum og shellholderum. Kannski digital vigt :-)

Það sem ég legg áherslu á er að vera með góða pressu sem auðvelt er að forma hylki með fyrir veiðibyssu. SEinna má svo altaf fá sér einhvað pempiulegra til kúlusetninga. Góðan skamttara og vandaða vigt. Fljótt á litið þá er þetta bara fínt kitt :P Ef einhverjar spurningar vakna spyrðu :-)
Sæll Einar
Takk fyrir greinargott svar. Vil samt byrja á því að leiðrétta eitt. Pakkinn sem ég pósta og pakkinn sem Sportbúðinn bíður upp á (linkurinn sem þú setur inn) eru ekki sambærilegir og því ekki hægt að bera saman 59 þús. og $500 :) Þetta er Boss Pro Pak annars vegar og Boss Pro Pak Deluxe hins vegar ;)

Tek undir það að versla eigi "í heimabyggð" ef hægt er en ég er bara að skoða alla kosti og þar sem USA er á dagskránni þá held ég öllum möguleikum opnum 8-) Veist þú í hverju þetta vesen við innflutning á hleðsluvörum felst? Þ.e.a.s. hvað er helsta vesenið? Einhver sérstök leyfi önnur en skitinn stimpill hjá Jónasi eða eitthvað slíkt?

Enn og aftur, allar tillögur vel þegnar en þó helst í formi ráðlegginga um kosti og galla. T.d. "Af gefinni reynslu, tel ég X vera betra en X vegna ... " :mrgreen:
Mbk.
Þórarinn Ólason
User avatar
E.Har
Posts: 624
Joined: 27 May 2012 23:26
Location: Reykjavík
Contact:

Re: Innflutningur á hleðslugræjum (Stefán? Pálmi? Aðrir?)

Unread post by E.Har »

Vandamálið er ekki innflutningurinn til Íslands sértu með hleðsluréttindin þá færðu stimpilinn ekkert mál.

Vandin er að flestar verslanir úti standa ekki í exporti á svona vegna nyrra laga um hriðjuverk.
Nenna ekki einusinni að skoða hvort þeir megi flytja þatta til þín!
Ætlaði að pannat trekt úr plasti og tikkler og fékk það ekki!
Tregt! Svo var gerð krafa um púðurflutning á þessu!
Vandin er ekki hér heldur í USA :-(

Spurning um hvað kostar að taka skamtarann aukalega.
Var ekki skamtari her á 10 kall a síðunni. :roll:
E.Har

Einar Kristján Haraldsson
860 99 55
Menn eiga að hafa manndóm til að setja nafnið sitt við það sem þeir segja ;-)
User avatar
TotiOla
Posts: 406
Joined: 07 Mar 2012 21:21
Location: 210 Garðabæ

Re: Innflutningur á hleðslugræjum (Stefán? Pálmi? Aðrir?)

Unread post by TotiOla »

E.Har wrote:Vandin er að flestar verslanir úti standa ekki í exporti á svona vegna nyrra laga um hriðjuverk. Nenna ekki einusinni að skoða hvort þeir megi flytja þatta til þín!
...
Vandin er ekki hér heldur í USA :-( Spurning um hvað kostar að taka skamtarann aukalega. Var ekki skamtari her á 10 kall a síðunni. :roll:
Sæll aftur

Ég skil. Ég hef einmitt tekið eftir þessari umræðu um hertar reglur í USA, en vissi ekki að þetta væri orðið svona strangt.

Það er, jú, skammtarinn, trimmerinn og eitthvað smádót sem bætist við í Deluxe útgáfunni. Auðvitað ekkert nauðsynlegt dót en þó væri fínt að fá þetta allt í sama pakkanum ef maður gæti tekið þetta með sér heim á 64 þús. (+VSK ef maður er í stuði, þá 80 þús.).
Mbk.
Þórarinn Ólason
User avatar
E.Har
Posts: 624
Joined: 27 May 2012 23:26
Location: Reykjavík
Contact:

Re: Innflutningur á hleðslugræjum (Stefán? Pálmi? Aðrir?)

Unread post by E.Har »

Ég nota trimmara ekki oft en skamtara alltaf.
Þó svo ég vigti allar hleðslur þá renni ég þeim á vog, skit ekki það mikið að það skipti máli.

Ef þú ert úti þá er þetta minna mál bara prófa :-)
Held samt að það borgi sig valla að láta senda þetta miðað við verðið hjá Óla.

En gangi þér vel og velkominn í skemtilegt áhugamál :-)
E.Har

Einar Kristján Haraldsson
860 99 55
Menn eiga að hafa manndóm til að setja nafnið sitt við það sem þeir segja ;-)
User avatar
TotiOla
Posts: 406
Joined: 07 Mar 2012 21:21
Location: 210 Garðabæ

Re: Innflutningur á hleðslugræjum (Stefán? Pálmi? Aðrir?)

Unread post by TotiOla »

Takk takk :D Bara skemmtilegt áhugamál!
Last edited by TotiOla on 10 Jan 2013 22:19, edited 1 time in total.
Mbk.
Þórarinn Ólason
Kristmundur
Posts: 75
Joined: 30 Jul 2012 17:18

Re: Innflutningur á hleðslugræjum (Stefán? Pálmi? Aðrir?)

Unread post by Kristmundur »

Ég er búin að flytja inn töluvert af hleðslugræjum á síðasta ári (pressu,diea,trikler og fl.) allt verslað á ebay margir þar sem senda hingað.
Kveðja.
Kristmundur Skarpheðinsson
User avatar
baikal
Posts: 33
Joined: 16 Jul 2010 23:17
Fullt nafn: Einar Stefánsson
Location: Skagafjörður
Contact:

Re: Innflutningur á hleðslugræjum (Stefán? Pálmi? Aðrir?)

Unread post by baikal »

Sæll Tóti.

Hvort dýrustu hleðslugræjur af fínustu gerð duga til að fá nákvæma hleðslu ? :oops:
humm ,mín reynsla er sú að ,hleðslan verður jafn nákvæm og maðurinn sem hleður hana vill hafa
hana, meiri nákvæmni , meiri vinna. :roll:
Kveðja úr Skagafirði.
Einar Stefánsson.
User avatar
TotiOla
Posts: 406
Joined: 07 Mar 2012 21:21
Location: 210 Garðabæ

Re: Innflutningur á hleðslugræjum (Stefán? Pálmi? Aðrir?)

Unread post by TotiOla »

Kristmundur wrote:Ég er búin að flytja inn töluvert af hleðslugræjum á síðasta ári (pressu,diea,trikler og fl.) allt verslað á ebay margir þar sem senda hingað.
Sæll Kristmundur
Takk fyrir að koma því á hreint :D Var það þá keypt (sent) frá USA í gegnum eBay eða varstu að versla á breska/evrópska eBay? Og þurfti engin önnur leyfi en þau sem maður fær hjá Jónasi fyrir innflutningnum?
baikal wrote:Sæll Tóti.
Hvort dýrustu hleðslugræjur af fínustu gerð duga til að fá nákvæma hleðslu ? :oops:
humm ,mín reynsla er sú að ,hleðslan verður jafn nákvæm og maðurinn sem hleður hana vill hafa
hana, meiri nákvæmni , meiri vinna. :roll:
Sæll Einar
Góður punktur. Nákvæmni, gæði, ending og að lokum færni (þolinmæði jafnvel?) þess sem hleður... þetta helst allt í hendur. Einhver ástæða hlýtur þó að vera fyrir því að menn eru tilbúnir að borga himinnhátt verð fyrir einhverja keppnisdæja og sérstakar pressur. Ég er, eins og áður kom fram, ekki endilega að leita mér að einhverjum benchrest græjum. Það sem ég er frekar að hugsa er hvar ég fæ mest fyrir peninginn, nákvæmnislega og þægindalega séð ;)
Mbk.
Þórarinn Ólason
User avatar
TotiOla
Posts: 406
Joined: 07 Mar 2012 21:21
Location: 210 Garðabæ

Re: Innflutningur á hleðslugræjum (Stefán? Pálmi? Aðrir?)

Unread post by TotiOla »

Þess ber einnig að geta, eins og áður kom (kannski óljóst) fram, að:
1. Ég keypti mér Redding dæja (3 dæja set).
2. Hallast að skálavog frekar en digital (vegna aðstæðna við hleðsluaðstöðu)
3. Og að lokum þá sé ég ekki fram á að þurfa að taka pressuna með mér út á skotsvæði (Arbor?).

P.s. Ef mönnum er illa við að upplýsa um viðskiptahætti sína eða skoðanir á opinberum vettvangi þá skil ég það vel og tek við vinsamlegum ábendingum eða upplýsingum í einkaskilaboðum og á thorarinnola@gmail.com :D
Mbk.
Þórarinn Ólason
Kristmundur
Posts: 75
Joined: 30 Jul 2012 17:18

Re: Innflutningur á hleðslugræjum (Stefán? Pálmi? Aðrir?)

Unread post by Kristmundur »

Sæll Tóti. Þetta var allt tekið frá usa og einkaaðilum,ég þurfti aldrei að fara í Jónas,þeir hjá tollinum báðu bara um eintaks númer á ebay.
Kveðja.
Kristmundur Skarpheðinsson
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Innflutningur á hleðslugræjum (Stefán? Pálmi? Aðrir?)

Unread post by Veiðimeistarinn »

Gömlu góðu handhleðslutækin standa nú líka alltaf fyrir sínu þó ég viti ekki hvað þau kosta, en plasthamarinn mun hægt að kaupa í Verkfæralagernum fyrir ,,skít og ingen ting".
(Já á myndinni er allt sem nota þarf til handhleðslu, meira að segja tvennt af því sem er nauðsynlegast. Hausar til að hugsa með, svona mátulega rétt á skrúfaðir)
Síðan hef ég ekki getað séð betur en ,,benc restararnir" hafi verið að nota einhverjar svipaðar græjur á skotmótunum hjá SKAUST við að hlaða keppniskúlur sínar, mér sýnist þeir aðallega nota plasthamarinn og síðan hendurnar til að hlaða skotin sín og einhverja stálhóka sem svipar til dia, sem þeir lemja á sitt á hvað.
Ekki veit ég svo sem hvað þær græjur kosta en þær virka að því er mér finnst einhvern vegin frekar einfaldar á að líta, að minnsta kosti svona í fljótu bragði.

Ég er sammála því sem Einar Stefánsson segir hér ofar í þræðinum að alúð og vandvirkni er það sem tryggir besta árangurinn þegar upp er staðið, frekar en dýrleiki græjanna sem slíkur :D
Attachments
Halldór Walter Stefánsson sýnir handhleðslu riffilskota á hleðslunámskeiði, Emil Skriðdal Björnsson fylgist kankvís með.
Halldór Walter Stefánsson sýnir handhleðslu riffilskota á hleðslunámskeiði, Emil Skriðdal Björnsson fylgist kankvís með.
Last edited by Veiðimeistarinn on 09 Jan 2013 21:33, edited 4 times in total.
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Benni
Posts: 122
Joined: 16 Feb 2012 09:33
Fullt nafn: Benjamín Þorsteinsson
Location: Húsavík

Re: Innflutningur á hleðslugræjum (Stefán? Pálmi? Aðrir?)

Unread post by Benni »

Redding dæjar eru mjög góðir og ég segi það ekki bara því þú keiptir þá af mér Tóti :mrgreen:
Hef átt flest öll merki af dæjum nema Forster og eru Redding toppurinn að mínu mati í pressudæjum.

Pressurnar frá RCBS, Redding, Lyman og Hornady eru flestar góðar held ég.
Aðal atriðið er að þær séu úr stáli og því þyngri því betra(=
Ég er enn að nota gamla Lyman hlunkinn minn, hún bara klikkar ekki.

Ég er hrifnari af skálavogum en digital, nenni ekki alltaf að vera að endurstilla dótið.
Er með 25 ára gamla Hornady skálavog sem hefur staðið sig mjög vel.

Annars eru flest öll þessi sett með góðum hlutum og svosem ekki slæm fjárfesting til að byrja með en það er alltaf eitthvað sem þig mun langa til að uppfæra.
Post Reply