Hvernig sjónauka?

Allt sem viðkemur byssum
skúliskytta
Posts: 11
Joined: 17 Sep 2012 23:45

Hvernig sjónauka?

Unread post by skúliskytta »

Sælir

Er að spá að fara að fjárfesta mér í sjónauka á riffilinn minn sem er savage edge 243, ég er með bushnell 3-9x40 á honum í dag, og mér finnst stækkunin alls ekki nóg, en ágætur að öðru leiti, ég hef ekkert sérstakt vit á sjónaukum yfir höfuð, mér langar náttúrulega að fá sem besta sjón aukna fyrir minnsta pening eins og flestir held ég, ég er að hugsa um sjónauka í ódýrari kantinum í þetta skiptið og á ég þá ið undir 100 kallinum, og hvort sem er kaupa hér heima eða panta frá usa, ef menn hafa einhverjar góðar hugmyndir fyrir mig, og eins sem geta bent mér á eithvað gáfulegt í þessum málum þar sem ég hef ekkert of mikið vit á þessu :o
Með von um góð svör,
Takk fyrir
Adolf Hannesson
310 Borgarnes
User avatar
Gisminn
Posts: 1349
Joined: 29 Aug 2011 21:47
Location: Blönduós

Re: Hvernig sjónauka?

Unread post by Gisminn »

Þessi er allt fyrir peninginn en aðeins yfir 100'
http://www.eshop.is/skyttan/VaraInfo.as ... nCatID=317
En þessi er undir 100 og sagður góður þekki það ekki.
http://hlad.is/index.php/netverslun/sjo ... ilsjnauki/

Og svona áður en fjandinn verður laus endilega komdu inn á fullu nafni elsku kallinn minn.
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
User avatar
Tf-Óli
Posts: 119
Joined: 08 Mar 2012 21:26
Location: Borgarnes.

Re: Hvernig sjónauka?

Unread post by Tf-Óli »

Meopta Meopro 6-18x50 fær mín bestu meðmæli. Færð mikið fyrir peninginn þar.
Last edited by Tf-Óli on 04 Mar 2013 11:50, edited 2 times in total.
Kveðja - Ólafur Ágúst Stefánsson
iceboy
Posts: 466
Joined: 26 Apr 2012 15:58
Contact:

Re: Hvernig sjónauka?

Unread post by iceboy »

Þessi hérna er 80-85000 hingað kominn.

http://www.opticsplanet.com/vortex-rifl ... -06fp.html

Flottur kikir og mikið fyrir peninginn, ég er kominn með þennan kiki á 2 riffla hjá mér :-)
Og er ég mjög sáttur
Árnmar J Guðmundsson
Gísli Snæ
Posts: 475
Joined: 12 Apr 2012 21:37

Re: Hvernig sjónauka?

Unread post by Gísli Snæ »

Fyrir utan að það vantar nafn undir spurninguna, þá vantar betri upplýsingar til að leiðbeina.

Í hvað ætlar þú að nota sjónaukann? Er þetta ætlað í veiði, skotfimi? Viltu ljós í krossinn - ætlar þú nota hann við nætur/rökkurveiði. Ætlar þú að nota núverandi festirngar (tommu túba - 30 mm). O.s.frv.
Kveðja,
Gísli Snæbjörnsson
gislisnae@islandia.is
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Hvernig sjónauka?

Unread post by Veiðimeistarinn »

Hvernig í ósköpunum dettur mönnum í hug að vera að svara manni sem reynir að koma hér fram nafnlaust, hér gilda ákveðnar reglur, ekki satt :evil: :evil:
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
skúliskytta
Posts: 11
Joined: 17 Sep 2012 23:45

Re: Hvernig sjónauka?

Unread post by skúliskytta »

Af samið þetta með nafnið, var að bæta því við, er svona að læra á þetta :)
Ég hef nú aðallega hugsað mér hann í veiði, en auðvitað æfir maður sig á pappanum, og eins og ég sagði þá hef ég ekkert mikla þekkingu á glerjum, er búinn að labba aðeins á milli búða í bænum og Skoða, hef nú ekki farið neitt að skjóta varð í rökkvi, en langar, en mér langar í góðan svona alhliða sjónauka, en því miður leifir fjárhagurinn ekki einhverja topp græju núna, það verður næst þegar maður verður kominn með alvöru hólk undir líka ;) svo ég er bara að leita til ykkar reyndari manna með upplýsingar, veit að það eru ekki Allir sem eiga rosalega dýr gler og eða hafa átt ódýrari gler áður, og geta gefið mér punkta :) takk fyrir adolf
Adolf Hannesson
310 Borgarnes
skúliskytta
Posts: 11
Joined: 17 Sep 2012 23:45

Re: Hvernig sjónauka?

Unread post by skúliskytta »

Já reikna með að,kaupa mér nýjar festingar hinar eru lélegar.

Var búinn að rekast á þennan?

http://cameralandny.com/optics/vortex.p ... per6-20x44

Svo var ég búinn að skoða hawke nite eye 4-16x50 hann er með ljósi og á fínan pening í ellingsen, en ég vil heyra af reynslu meiri mönnum í þessum málum.
Takk fyrir
Adolf
Adolf Hannesson
310 Borgarnes
iceboy
Posts: 466
Joined: 26 Apr 2012 15:58
Contact:

Re: Hvernig sjónauka?

Unread post by iceboy »

Það var Hawke á rifflinu hjá mér til að byrja með.
Ég fór svo yfir í Vortex og sé enganveginn eftir því.

Ég mæli með Vortex frekar en Hawke.

Ef þú tekur Hawke þá muntu fljótlega fara að huga að því að skipta honum út fyrir eitthvað annað, þú verður miklu sáttari held ég með Vortexinn enda er hann að mínu mati langtíma eign sem þú verður ánægður með.

Þetta er nú bara mín skoðun út frá minni reynslu af báðum þessum tegundum

P.S
http://www.opticsplanet.com/vortex-rifl ... -06fp.html

Það munar bara 30 dollurum á þessum og þeim sem þú ert að skoða á cameraland en þessi er með stærri framlinsu
Árnmar J Guðmundsson
Baldvin
Posts: 35
Joined: 28 Jan 2013 23:34
Fullt nafn: Baldvin Örn Einarsson

Re: Hvernig sjónauka?

Unread post by Baldvin »

Weaver hjá Vesturröst er líka fínt gler fyrir peninginn, að ég held. Svona í ódýrari kantinum. Ég var orðinn ákveðinn í að kaupa Weaver 40/44 þegar ég fékk svo tækifæri á að kaupa flottari Nikon að utan fyrir svipað verð. Ég er ánægður með Nikoninn en Weaverinn er fullt eins skarpur að mér hefur sýnst. Amk við bestu skilyrði.
Baldvin Örn Einarsson
Reykjavík
User avatar
Spíri
Posts: 256
Joined: 25 Feb 2012 09:16

Re: Hvernig sjónauka?

Unread post by Spíri »

Sæll Adolf og velkominn á spjallið :D komdu bara í kaffi til mín og ég skal reyna að leiða þig í allan sannleikann um sjónauka, allavega þann sannleika sem ég bý yfir ;)
Svo þarftu að koma í Skotfélagið, alltaf pláss fyrir smiði :lol:
Kv. Þórður Sigurðsson Spíri. Borgarnesi
karlguðna
Posts: 471
Joined: 13 Feb 2013 13:46
Fullt nafn: guðmundur karl guðnason

Re: Hvernig sjónauka?

Unread post by karlguðna »

þar sem þetta á ekki að kosta allan peninginn þá fengi ég mér nikko stirling , hef átt svoleiðis og líkaði vel. er nú með MINOX 4-20x50 og líkar vel sérstaklega æfi ábyrgðin (sama hvað) :D
en hvað veit ég ?? ég hélt að tasko væri rusl en svo er einn atvinnuveiðgúrúinn hér á spjallinu sem segist hafa verið með einn og sama tascoinn í 20 ár . Ég held að með þessa ódýrari kíkja sé kannski meiri líkur á "mánudags" eintökum. En gangi þér vel, mundu bara að ekkert er fullkomið af þessu dóti.
Elskun náungann.
BKV. Karl Guðna.
Gísli Snæ
Posts: 475
Joined: 12 Apr 2012 21:37

Re: Hvernig sjónauka?

Unread post by Gísli Snæ »

Mæli með að þú takir tilboði Þórðar um kaffi og spjall og vinnir síðan út frá því.
Kveðja,
Gísli Snæbjörnsson
gislisnae@islandia.is
Sveinn
Posts: 166
Joined: 07 May 2012 20:58

Re: Hvernig sjónauka?

Unread post by Sveinn »

Verðin á 6.5-20x44 Vortex Viper hjá Cameraland fara eftir krossi, ef menn velja MilDot eða BDC kross þá munar bara 30 USD miðað við 50 mm linsuna, engin spurning að taka þá 50 mm. Hins vegar munar um 80 USD (miðað við 50mm) ef menn velja einfaldasta krossinn, V-Plex (venjulegur plex kross), hjá CameraLand. Sá kíkir (6.5-20x44) með V-Plex er á tilboði, 280 USD sem ætti að gera um 50-55 þ ISK hingað kominn.
Með kveðju,
Sveinn Aðalsteinsson
skúliskytta
Posts: 11
Joined: 17 Sep 2012 23:45

Re: Hvernig sjónauka?

Unread post by skúliskytta »

Já þurfti að kíkja á þig þórður, bæði í sambandi vík sjónauka, og eins með skotfélagið :)
Adolf Hannesson
310 Borgarnes
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Hvernig sjónauka?

Unread post by Veiðimeistarinn »

Sæll Adolf og velkominn hérna á spjallið.
Fyrirgefðu hvað ég var hranalegur út af nafnleysi þínu hérna í upphafi.
Hvað kíki á riffil varðar finnst mér þetta vera val skyttunnar, bæði hvað verð og gæði varðar, það er gamall og nýr sannleikur að í svona sjónglerjum borgar þú fyrir gæði.
Samt er ekki endilega best fyrir okkur að fá okkur það dýrasta og besta, sérstaklega ef við erum ekki að nota þessa veiðiriffla mikið.
Mér finnst mest um vert að skyttan sjái greinilega gegn um glerið og það hafa mátulega stækkun sem hæfir auga skyttunnar og kröfum hennar.
Þegar upp er staðið er það alltaf maðurinn með augað fyrir aftan kíkinn sem öllu máli skiptir hvað árangurinn varðar en árangurinn verður tvímælalaust betri ef skyttunni líkar að horfa gegn um kíkinn.
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Gísli Snæ
Posts: 475
Joined: 12 Apr 2012 21:37

Re: Hvernig sjónauka?

Unread post by Gísli Snæ »

Og síðan er annað sem ég hef tekið eftir meira og meira eftir að ég horfi í gegnum fleiri tegundir sjónauka. Sumir sjónaukar, sama hversu góðir þeir eru, virðast bara ekki henta minni sjón. Hef reyndar orðið meira var við þetta í handsjónaukum. Skoðaði einn um daginn sem ég veit að er góður sjónauki - en ég gat ómögulega fengið hann til að fúnkera fyrir mig. Prufaði 2 stk, annan í 8x42 og hinn í 10x42 og það var sama hvorn ég reyndir - ekki að ná góðri mynd.
Kveðja,
Gísli Snæbjörnsson
gislisnae@islandia.is
User avatar
E.Har
Posts: 624
Joined: 27 May 2012 23:26
Location: Reykjavík
Contact:

Re: Hvernig sjónauka?

Unread post by E.Har »

Það er venjulega hægt að stilla sjónauka fyrir augun á skittunum.
Til sérstök blöð í það svona fyrir fókusbrasið.

Ég er sammála Sigga eins og oft áður að tærleikin skiptir mikklu en skyttan meiru.

Ég var í mörg ár með Tasco á 6,5-55 svo fór ég einhvað að vantreysta honum veit ekki hvort það voru festingar, sjónaaukinn, riffillinn, eða bara ég :-)
Allavega reyndist hann vel á sínum tíma.

Núna nota ég 3 sjónauka get hugsað mér þann 4 og 5 :-) Kröfurnar hafa breyst.
Spurnngin er hvað þú reiknar með að nota hann mest í, en svo duga þeir auðvitað í allt.
Persónulega finnst mér sjónauki eigi að vera dyrari en riffill. Enda slitnar hann minna en hlaup :-)

1. Skógarveiði þröngt Aimpoint.
2. Fjallabras, leiðsögn ofl 3-12 *50 lZeiss okaðir turnar. stiltur á 175 m. Traustur, bjartur, ekkert sem getur hreyfst á bakinu á mér, 300m túba gerair hann þokkalega víðan og 500 mm gler bjartan. Gæderí, hreindyr á fjörðum ofl.
3. Refir, fuglar, langt í burtu :-) 6-24 * 50 Zeiss Ljós í krossi, droppturnar, 30 mm tuba. Fínn ef ég hef mikin tíma, fuglar og refir og pappír. Þyngri en 3-12 og ekki alveg eins traustur, það er t.d geta turnar runnið til. Löng færi :-) Það er að segja það langt að ég vil nota turnana.

Get hugsað mér 1,5-6 sem skógarkíki án safnlinsu. Skotið með bæði augun opin. Myndi leysa aimpoint af í einhverjum tilfellum.
Get hugsað mér einhvern stóran Nightforce með mikilli stækkun sem pappírsgatara :-)

Heilt yfir ef ég á að velja einn sjónauka fyrir Ísland.
Skarpur og bjartur, 30 mm tuba og ekki minni fremstalinsa en 50 mm. Oft lítil birta.
Engin tré svo stækkun er + minstastækkun má alvega vera 6 eða 9 notar sjaldan minna hér heima.
ATh þeir verða dimmari með meiri stækkun svo meiri stækkun en þetta í minnstustöðu er ekki kostur.
Í hrendyr er ágætt að sjá næstudýr líka ef færið er stutt. Sumir eru snöggir að horfa yfir sjónaukan og velja dýr. Ég vil sjá soldið af hjörðinni. Svo þarf ekki mikkla stækkun, en gott að geta skrúfað upp fyrir löng færi, fugla og pappír :-) 3-12 ;4-16; 6-24 allt vel brúklegar stækkanir.
Ljós og droppturnar!...........
Ljós getur verið kostur á rebba, en t.d 3-12 hjá mér er með skírum krossi og dugar ótrúlega lengi.
Kostur en spurning um verð.
Droppturnar, kostur en þú ert að teygja þig mjög langt. 250 m byssa þarf ekki svoleiðis.
Flestir eru að tala um að skjóta gatið úr gatinu á 500 metrum, eru bara í einhverri steypu.
Flest hreindyr skotin á undir 150 m.
Flesir fuglar á undir 200 svo!

Stutta samantektin af langa rausinu :geek:
Zomm á bilinu 3-12 upp í 6-24
30 mm tuba
því stærri framlinsa því betra, að einhverju marki samt :mrgreen:
+ fyrir ljós
smá + fyrir góða turna en ekkert aðalatriði samt.
Borga fyrir tærleika og traust 8-)

Kaupa vandaðan sjónauka þá græturðu bara einusinni :lol:
E.Har

Einar Kristján Haraldsson
860 99 55
Menn eiga að hafa manndóm til að setja nafnið sitt við það sem þeir segja ;-)
karlguðna
Posts: 471
Joined: 13 Feb 2013 13:46
Fullt nafn: guðmundur karl guðnason

Re: Hvernig sjónauka?

Unread post by karlguðna »

Einar af hverju 30mm túpu ?? er það einhverju að breyta ??
Elskun náungann.
BKV. Karl Guðna.
konnari
Posts: 343
Joined: 12 Mar 2012 15:04

Re: Hvernig sjónauka?

Unread post by konnari »

Það breytir svo sem engu.....það eina sem 30mm túba hefur fram yfir 25.4mm túbu er meiri stillingar upp/niður og hægri/vinstri ! Þ.e. þú getur fært krossinn meira........ það breytir hins vegar engu varðandi birtumagn eða slíkt sem sagt alveg jafn bjartir.
Kv. Ingvar Kristjánsson
Post Reply