Það er venjulega hægt að stilla sjónauka fyrir augun á skittunum.
Til sérstök blöð í það svona fyrir fókusbrasið.
Ég er sammála Sigga eins og oft áður að tærleikin skiptir mikklu en skyttan meiru.
Ég var í mörg ár með Tasco á 6,5-55 svo fór ég einhvað að vantreysta honum veit ekki hvort það voru festingar, sjónaaukinn, riffillinn, eða bara ég

Allavega reyndist hann vel á sínum tíma.
Núna nota ég 3 sjónauka get hugsað mér þann 4 og 5

Kröfurnar hafa breyst.
Spurnngin er hvað þú reiknar með að nota hann mest í, en svo duga þeir auðvitað í allt.
Persónulega finnst mér sjónauki eigi að vera dyrari en riffill. Enda slitnar hann minna en hlaup
1. Skógarveiði þröngt Aimpoint.
2. Fjallabras, leiðsögn ofl 3-12 *50 lZeiss okaðir turnar. stiltur á 175 m. Traustur, bjartur, ekkert sem getur hreyfst á bakinu á mér, 300m túba gerair hann þokkalega víðan og 500 mm gler bjartan. Gæderí, hreindyr á fjörðum ofl.
3. Refir, fuglar, langt í burtu

6-24 * 50 Zeiss Ljós í krossi, droppturnar, 30 mm tuba. Fínn ef ég hef mikin tíma, fuglar og refir og pappír. Þyngri en 3-12 og ekki alveg eins traustur, það er t.d geta turnar runnið til. Löng færi

Það er að segja það langt að ég vil nota turnana.
Get hugsað mér 1,5-6 sem skógarkíki án safnlinsu. Skotið með bæði augun opin. Myndi leysa aimpoint af í einhverjum tilfellum.
Get hugsað mér einhvern stóran Nightforce með mikilli stækkun sem pappírsgatara
Heilt yfir ef ég á að velja einn sjónauka fyrir Ísland.
Skarpur og bjartur, 30 mm tuba og ekki minni fremstalinsa en 50 mm. Oft lítil birta.
Engin tré svo stækkun er + minstastækkun má alvega vera 6 eða 9 notar sjaldan minna hér heima.
ATh þeir verða dimmari með meiri stækkun svo meiri stækkun en þetta í minnstustöðu er ekki kostur.
Í hrendyr er ágætt að sjá næstudýr líka ef færið er stutt. Sumir eru snöggir að horfa yfir sjónaukan og velja dýr. Ég vil sjá soldið af hjörðinni. Svo þarf ekki mikkla stækkun, en gott að geta skrúfað upp fyrir löng færi, fugla og pappír

3-12 ;4-16; 6-24 allt vel brúklegar stækkanir.
Ljós og droppturnar!...........
Ljós getur verið kostur á rebba, en t.d 3-12 hjá mér er með skírum krossi og dugar ótrúlega lengi.
Kostur en spurning um verð.
Droppturnar, kostur en þú ert að teygja þig mjög langt. 250 m byssa þarf ekki svoleiðis.
Flestir eru að tala um að skjóta gatið úr gatinu á 500 metrum, eru bara í einhverri steypu.
Flest hreindyr skotin á undir 150 m.
Flesir fuglar á undir 200 svo!
Stutta samantektin af langa rausinu
Zomm á bilinu 3-12 upp í 6-24
30 mm tuba
því stærri framlinsa því betra, að einhverju marki samt
+ fyrir ljós
smá + fyrir góða turna en ekkert aðalatriði samt.
Borga fyrir tærleika og traust
Kaupa vandaðan sjónauka þá græturðu bara einusinni
