338Norma

Allt sem viðkemur byssum
User avatar
Spíri
Posts: 256
Joined: 25 Feb 2012 09:16

338Norma

Unread post by Spíri »

Nú hefur sá stóri verið skapaður :D en þetta verkefni hófst hjá árið 2009 er ég keypti long action Remington 700. Upphaflega planið var að útbúa riffil sem ætlaður væri fyrir "löngu" færin 1000 metra og lengra. Á leiðinni að settu marki hefur mikið vatn runnið til sjávar og mikið verið pælt, en upphaflega planið var að kaupa almennilegt hlaup á lásinn og fá sér svo Bell and Karlson skepti en er ég sá Grs skeptin í hlað varð lendingin að fá sér svoleiðis.
En verkfærið inniheldur: Rem 700 long action lás, Lothar Walther hlaup, Grs skepti, Accuracy International magasín og botnplötu, Sako útdragara og ofan á herlegheitunum er svo Night Force 8-32x56 sjónauki og eru hringirnir og basinn einnig frá Night Force.
Ég ætlaði mér alltaf að hafa riffilinn í 300 Win Mag, en er ég sá að það var möguleiki að gera hann að 338 Norma var ég ekki lengi að skipta um skoðun ;) Arnfinnur Jónsson sá um samsetningu og smíði og er handverkið hjá kappanum hreint listaverk, en þess skal getið að hann smíðaði breikið á hlaupið.
Attachments
3.jpg
3.jpg (13.87 KiB) Viewed 4355 times
2.jpg
2.jpg (13.62 KiB) Viewed 4355 times
01.jpg
01.jpg (11.63 KiB) Viewed 4355 times
0.jpg
0.jpg (4.02 KiB) Viewed 4355 times
untitled.png
untitled.png (12.77 KiB) Viewed 4355 times
Kv. Þórður Sigurðsson Spíri. Borgarnesi
Gísli Snæ
Posts: 475
Joined: 12 Apr 2012 21:37

Re: 338Norma

Unread post by Gísli Snæ »

Glæsilegur riffill hjá þér. Næst tekur maður sig til að býr til eitthvað svona stórt.

Redduðu Hlað menn botnplötunni og magasíninu fyrir þig eða pantaðir þú það sjálfur - þá hvar?
Kveðja,
Gísli Snæbjörnsson
gislisnae@islandia.is
User avatar
Pálmi
Posts: 119
Joined: 13 Mar 2012 19:40

Re: 338Norma

Unread post by Pálmi »

Hrikalega flottur, djöfull langar mig líka í svona ;)
Kv. Pálmi S. Skúlason

When discussing caliber, Dead is dead and it’s not worth arguing about.
User avatar
Spíri
Posts: 256
Joined: 25 Feb 2012 09:16

Re: 338Norma

Unread post by Spíri »

Góður Pálmi þú þarft að fara á pósthúsið á föstudag :mrgreen:

Gísli ég sendi þér einkaskilaboð.
Kv. Þórður Sigurðsson Spíri. Borgarnesi
Gísli Snæ
Posts: 475
Joined: 12 Apr 2012 21:37

Re: 338Norma

Unread post by Gísli Snæ »

Fékk þau ekki
Kveðja,
Gísli Snæbjörnsson
gislisnae@islandia.is
konnari
Posts: 343
Joined: 12 Mar 2012 15:04

Re: 338Norma

Unread post by konnari »

Þórður ! Smá forvitni.......hvaða twist er í hlaupinu ?
Kv. Ingvar Kristjánsson
User avatar
Tf-Óli
Posts: 119
Joined: 08 Mar 2012 21:26
Location: Borgarnes.

Re: 338Norma

Unread post by Tf-Óli »

Flottur.
Ég sé fyrir mér big bore mót á lækjartúninu. Ég verð bara dómari, enda er ég bara með smákúlubyssur í samanburði við þig og vin okkar :D
Kveðja - Ólafur Ágúst Stefánsson
User avatar
Spíri
Posts: 256
Joined: 25 Feb 2012 09:16

Re: 338Norma

Unread post by Spíri »

Tvistið er 1/10" og er hlaupið 26 tommur
Kv. Þórður Sigurðsson Spíri. Borgarnesi
karlguðna
Posts: 471
Joined: 13 Feb 2013 13:46
Fullt nafn: guðmundur karl guðnason

Re: 338Norma

Unread post by karlguðna »

Til hamingju með flottan grip.
Smá forvitni, 338 lapua er það sama hylki?
er hann að lemja mikið með brake ?
hvað kostar svona "alvöru" pakki ?
Elskun náungann.
BKV. Karl Guðna.
User avatar
Spíri
Posts: 256
Joined: 25 Feb 2012 09:16

Re: 338Norma

Unread post by Spíri »

Þetta er ekki sama hylkið, Norma hylkið er aðeins styttra en það mjókkar ekki eins fram og Lapua hylkið, þó það sé voðalítill sjáanlegur munur.
En skv norma hleðslubæklingnum er .338 Norma að senda Sierra MK300grs á 2604fps miðað við max hleðslu á móti að þá er .338 Lapua að senda sömu kúlu á 2589fps miðað við max hleðslu. Í báðum tilvikunum var notast við Norma MRP púður og var max hleðsla sú sama, 80grs.
Þannig að þessi tvö cal eru nánast á pari.
Varðandi verðið, þá var hann hverrar krónu virði :mrgreen: en allavega ódýrari en Sako TRG og dýrari en Sako Hunter ;)
Attachments
338_Lapua.jpg
338_Lapua.jpg (10.18 KiB) Viewed 3964 times
Kv. Þórður Sigurðsson Spíri. Borgarnesi
User avatar
E.Har
Posts: 624
Joined: 27 May 2012 23:26
Location: Reykjavík
Contact:

Re: 338Norma

Unread post by E.Har »

Enn vantar mig like hnapp :P

Glæsileg græja og til lukku.
E.Har

Einar Kristján Haraldsson
860 99 55
Menn eiga að hafa manndóm til að setja nafnið sitt við það sem þeir segja ;-)
Hilmir
Posts: 25
Joined: 29 May 2012 13:04

Re: 338Norma

Unread post by Hilmir »

Ég mundi nú aldrei setja 80 gn af púðri í .338 LM hjá mér, það er bara rúmlega hálfur brúsi. :lol:
Skv. QuickLoad þá kem ég Sierra HPBT 300 gn á 2800 f/s. Reyndar með 30" hlaup.
Hilmir Valsson
Borgarnesi
hilmirva@simnet.is
User avatar
Gisminn
Posts: 1349
Joined: 29 Aug 2011 21:47
Location: Blönduós

Re: 338Norma

Unread post by Gisminn »

Þetta er bara flott hjá þér Þórður og gaman að .ví þegar menn fylgja hjartanu og eru líka ánægðir með það :lol:
Til lukku
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
guffi
Posts: 16
Joined: 11 Dec 2012 00:32

Re: 338Norma

Unread post by guffi »

alltaf gamann að sjá hvað menn eru að gera en af hverju get ég ekki stækkað þessar myndir?
Kv Vagn Ingólfsson Ólafsvík . GSM 8677957.
User avatar
Spíri
Posts: 256
Joined: 25 Feb 2012 09:16

Re: 338Norma

Unread post by Spíri »

Hérna kemur mynd sem er vonandi hægt að stækka.
Attachments
photo.jpg
photo.jpg (82.78 KiB) Viewed 3651 times
Kv. Þórður Sigurðsson Spíri. Borgarnesi
Garpur
Posts: 88
Joined: 26 Mar 2012 17:50
Location: Skagafjörður

Re: 338Norma

Unread post by Garpur »

Til hamingju með þetta, smekkleg samsetning og gæðin örugglega eftir því.
Kv. Garðar Páll Jónsson
Post Reply