Allt tengt endurhleðslu. Kúlur, hylki, púður og ýmis tæki og tól
Forum rules
Allar upplýsingar um hleðslutölur eru án ábyrgðar og hver sem hyggst nýta sér þær skal fylgja öryggisreglum um hleðsu skotvopna og ávalt byrja á lágmarkshleðslu og vinna sig upp.
Gylfi, það er í besta lagi þó við séum komnir út fyrir upphafsspurninguna Maður er bara svo feginn að það er hægt að rabba hér saman á vitrænan, hátt laus við allt drullumallið og skítakommentin sem tröllríða öðru vefsvæði, sem má sannarlega muna sinn fífil fegurri.
Nú hef ég hlaðið nokkur hylki og gert prófun á þeirri hleðslu og er skemmst frá að segja að útkoman er hreint alveg glimmrandi góð fór að ráðum Gylfa Sig og var ekki svikinn frekar en fyrri daginn, 79grs af VV-165 þar sem ég er að nota Norma hylki og notaðist ég við Federal primera. Þriggja skota grúbba/klasi mældist 12mm á 100 metrum en Colið er frekar mikið hjá mér eða 92mm en skv. VV hleðslubókinni 7 hefti er hámarks col 84,8mm. En kúlan er alveg fram í rifflunum.